Hoppa yfir valmynd
9. mars 2022 Matvælaráðuneytið

Fjárfestingastuðningur í sauðfjárrækt

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 1253/2019, V. kafla. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2021-2022 skal skilað inn rafrænt á Bændatorginu eigi síðar en 15. mars.

Markmið stuðningsins er að stuðla að bættum aðbúnaði sauðfjár og hagkvæmari búskaparháttum.

Skilyrði fyrir veitingu fjárfestingastuðnings er að finna í 26. gr. reglugerðarinnar og eru vegna:

  1. Nýframkvæmda
  2. Endurbóta á eldri byggingum

Fylgiskjöl sem skila þarf með umsókn eru:

  1. Sundurliðuð kostnaðar- og framkvæmdaráætlun með tímasettri verkáætlun.
  2. Byggingarleyfi eða staðfesting byggingarfulltrúa um að byggingarleyfis sé ekki krafist vegna framkvæmdar.
  3. Samþykktar teikningar ef við á.
  4. Leyfi þinglýstra eigenda jarðar fyrir framkvæmd.

Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið 20% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 15 Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum