Hoppa yfir valmynd
16. mars 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til grunnnáms í listdansi

Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki vegna grunnnáms listdansskóla fyrir árið 2022. Styrkjunum er ætlað að efla framboð grunnnáms í listdansi. Þeir skólar sem geta sótt um styrk þurfa að kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla. Heildarstyrkfjárhæð er 14,6 m.kr. sem mun skiptast niður eftir heildarfjölda nemenda þeirra skóla sem sækja um styrk og uppfylla fyrrgreint skilyrði.

Með umsókn skal fylgja greinargerð um fyrirkomulag og aðstöðu til kennslu, fjölda nemenda í grunnnámi í listdansi, faglega getu og fjárhagslega stöðu.

Nánari leiðbeiningar um frágang umsókna eru á umsóknareyðublaði á vef ráðuneytisins.

Umsóknir eru sendar til [email protected] og er umsóknarfrestur til og með 13. apríl 2022.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum