Hoppa yfir valmynd
28. mars 2022 Matvælaráðuneytið

Samningur um markaðsverkefnið Horses of Iceland endurnýjaður - Alls 3.341 hross flutt úr landi 2021

Við undirritun samnings. F.v. Pétur Þ. Óskarsson frkvstj. Íslandsstofu, Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra, Guðni Halldórsson form. Landssambands hestamannafélaga, Sveinn Steinarsson form. Félags hrossabænda, Jelena Ohm verkefnastjóri og Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir, stjórnarmaður í Félagi tamningamanna. - mynd

Nýr samningur um markaðsverkefnið Horses of Iceland var undirritaður í matvælaráðuneytinu fyrir helgi. Gegn jafnháu mótframlagi aðila úr greininni verður allt að 25 milljónum króna varið árlega næstu þrjú árin til að styðja við markaðssetningu á Íslenska hestinum og hestatengdum vörum. Markmið verkefnisins er að byggja upp orðspor íslenska hestsins á völdum erlendum mörkuðum og leggja þannig grunn að aukinni verðmætasköpun og útbreiðslu hestsins á heimsvísu. Íslandsstofa annast rekstur verkefnisins sem hefur verið starfrækt frá árinu 2016. Aðrir sem koma að verkefninu eru Landsamband hestamanna, Félag hrossabænda og Félag tamningamanna.

Árangur í markaðsstarfinu hefur verið góður frá upphafi verkefnisins og útflutningur aukist. Síðastliðið ár var metár í útflutningi íslenskra hrossa, en alls voru 3.341 hross flutt úr landi.

Jelena Ohm er verkefnastjóri Horses of Iceland hjá Íslandsstofu:
Það er mjög ánægjulegt að geta tryggt áframhaldandi markaðsstarf í þágu íslenska hestsins og hagsmunaaðila í greininni. Mikill stígandi hefur verið í starfinu og aukinn áhugi á þessum knáa hesti. En það er enn verk að vinna og tækifæri til að sækja á nýja markaði

Það er ljóst að það samhæfða markaðsstarf sem Horses of Iceland hefur staðið fyrir síðastliðin fjögur ár hefur borið árangur og því er það í senn ánægjulegt og mikilvægt að styðja við það áfram, segir Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum