Hoppa yfir valmynd
1. apríl 2022 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Ágúst Ingþórsson nýr forstöðumaður Rannís

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur skipað Ágúst Hjört Ingþórsson forstöðumann Rannsóknamiðstöðvar Íslands frá 1. apríl.

Ágúst Hjörtur hefur frá árinu 2020 starfað sem sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís og var hann jafnframt staðgengill forstöðumanns. Ágúst Hjörtur réðst til starfa hjá RANNÍS árið 2013 og gegndi starfi sviðsstjóra mennta- og menningarsviðs til ársins 2020. Þar áður hafði hann m.a. stýrt Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands í 13 ár.

Ágúst er með BA próf í heimspeki og almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands, meistarapróf í heimspeki frá University of Ottawa og vinnur nú að doktorsritgerð samhliða starfi.

Ráðuneytið þakkar Hallgrími Jónassyni fráfarandi forstöðumanni fyrir framúrskarandi störf á liðnum árum. Rannís gegnir lykilhlutverki á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningarmála og hefur með ómældum metnaði stuðlað að  mikilvægri framþróun þekkingar í íslensku samfélagi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum