Hoppa yfir valmynd
26. júlí 2022 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins

Auglýst er eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á landbúnaðarvörum upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. september – 31. desember 2022. 
Vísað er til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 301/2022 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.

Vöruliður:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

kg

%

kr./kg

0201/0202

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt eða fryst

01.09. – 31.12.22

232.000

0

0

0203

Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst

01.09. - 31.12.22

234.000

0

0

0207

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst

01.09. - 31.12.22

286.000

0

0

ex0207

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu

01.09. - 31.12.22

66.000

0

0

0210

Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum

01.09. - 31.12.22

34.000

0

0

ex 0406

Ostur og ystingur (**)

01.09. - 31.12.22

76.000

0

0

0406

Ostur og ystingur

01.09. - 31.12.22

126.000

0

0

1601

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum

01.09. - 31.12.22

84.000

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

01.09. - 31.12.22

134.000

0

0

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en sem nemur auglýstum tollkvóta skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex 0406(**) en auglýstum tollkvóta nemur skal tollkvótanum úthlutað eftir hlutkesti. Úthlutun er ekki framseljanleg. Vörumagni vegna ársins 2022 er úthlutað í þremur tímabilum yfir árið.

Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá matvælaráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við ráðuneytið í síma 545-9700 eða á [email protected]. Sjá eftirfarandi ítarefni vegna úthlutunar tollkvóta:

Leiðbeiningar fyrir umsókn tollkvóta. 

Vefkerfi  fyrir úthlutun tollkvóta.

Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is, þriðjudaginn 26. júlí 2022 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 23.59, laugardaginn 6. ágúst 2022.

Matvælaráðuneytið,
26. júlí 2022.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum