Hoppa yfir valmynd
27. september 2022 Innviðaráðuneytið

Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2023

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur samþykkt eftirfarandi tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaðar úthlutanir framlaga á árinu 2023.

Áætluð framlög til útgjaldajöfnunar fyrir árið 2023

Áætluð útgjaldajöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga munu nema alls 13.000 m.kr. árið 2023. Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar þess efnis, sbr. b. liðar 12. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, að fjárhæð 13.000 m.kr.

Til úthlutunar nú koma 12.200 m.kr. samkvæmt A-hluta framlaganna og 575 m.kr. samkvæmt B-hluta framlaganna vegna skólaaksturs úr dreifbýli eða samtals 10.975 m.kr. Í desember koma til úthlutunar 175 m.kr. til viðbótar vegna skólaaksturs úr dreifbýli á grundvelli umsókna sveitarfélaga vegna íþyngjandi kostnaðar við aksturinn á árinu. Jafnframt er áætlað að 50 m.kr. verði úthlutað á árinu 2023 vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í apríl 2023 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2023. Framlögin verða greidd til sveitarfélaga mánaðarlega en 10 prósentum er þó haldið eftir af áætluðum framlögum til að mæta því ef ráðstöfunarfjármagn sjóðsins verður minna eða útgjöld meiri en áætlað var. Uppgjör framlaganna fer fram í desember 2023.

Um er að ræða 1.400 m.kr. hækkun frá áætlun framlaganna á árinu 2022. 

Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Ráðherra hefur einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu 2023, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð samtals 12.660 m.kr. Þar af eru 60 m.kr. vegna áætlaðs uppgjörs framlaga ársins 2021.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í apríl 2023 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2023, endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2021 og  endurskoðunar á áætluðum útsvarstekjum sveitarfélaga á árinu 2022.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,77% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar. 

Athygli er vakin á því að erfitt er að spá fyrir um skatttekjur ríkissjóðs og áætla hverjar útsvarstekjur sveitarfélaga verða á næsta ári. Því kunna þær heildarfjárhæðir sem varið er til þessara framlaga að breytast.

Framlög vegna sérþarfa fatlaðra grunnskólanemenda

Þá hefur ráðherra jafnframt samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á grunnskólaaldri á árinu 2023. 

Áætlunin verður tekin upp og endurskoðuð í nóvember 2023.

Framlag vegna íslenskukennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál

Ráðherra hefur loks samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætluð framlög vegna íslenskukennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál á árinu 2023, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 351/2002.

Gert er ráð fyrir að endanleg áætlun verði tekin fyrir í mars næstkomandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum