Hoppa yfir valmynd
27. september 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Aldrei fleiri í sérnámi í heimilislækningum

Frá bangsadeginum. Ungir læknanemar fá tækifæri til að æfa samskipti við börn - myndMynd: Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Aldrei hafa fleiri stundað sérnám í heimilislækningum. Í dag eru 95 læknar skráðir í námið en til samanburðar voru þeir 38 árið 2017. Frá þeim tíma hafa að jafnaði sjö til átta læknar útskrifast úr sérnáminu ár hvert. Nú er umtalsverð fjölgun fyrirsjáanleg. Við bestu aðstæður munu samtals 57 læknar ljúka sérnámi í heimilislækningum á næstu þremur árum.

Markvisst hefur verið unnið að því að efla heilsugæsluna síðustu ár með áherslu á hlutverk hennar sem fyrsta viðkomustaðar fólks í heilbrigðiskerfinu. Liður í því hefur verið að fjölga sérnámsstöðum í heimilislækningum og styrkja umgjörð námsins.

Sérnám í heimilislækningum tekur 5 ár og felur í sér þriggja ára starfsnám í heilsugæslu, tveggja ára starfsnám á sjúkrahúsi, auk fræðilegs hluta. Sérnámslæknar eru ráðnir til heilsugæslunnar og eru núna um 60% þeirra starfandi á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu en 40% hjá heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni. Haldið er utan um skipulag og stjórnun sérnáms í heimilislækningum hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar  heilsugæslu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum