Hoppa yfir valmynd
12. október 2022 Innviðaráðuneytið

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar haldin 28. október

Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 28. október á Hilton hóteli. - mynd

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2022 verður haldin föstudaginn 28. október á Hilton Reykjavík Nordica, frá kl. 9.00-16.30.

Ráðstefnan er árlega og að vanda er dagskráin fjölbreytt og endurspeglar það margháttaða rannsókna- og þróunarstarf sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar. Á ráðstefnunni í ár verður mest fjallað um rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2021. Sextán rannsóknaverkefni verða til umfjöllunar og samhliða veggspjaldasýning með um tíu verkefnum.

Í tilkynningu um ráðstefnuna á vef Vegagerðarinnar segir: Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar liggur í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki er endilega einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.

Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsfólki ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktaka og almenns áhugafólks um samgöngur og rannsóknir auk starfsfólks Vegagerðarinnar, Almennt skráningargjald er 20.000 kr. en fyrir nema 7.000 kr.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum