Hoppa yfir valmynd
19. október 2022 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra tók á móti forseta Finnlands í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók á móti forseta Finnlands, Sauli Niinistö, og Jenni Haukio forsetafrú í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í hádeginu í dag. Forsætisráðherra og forseti Finnlands ræddu meðal annars gott samband Íslands og Finnlands, norrænt samstarf almennt og stöðuna í Evrópu vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Finnsku forsetahjónin eru hér á landi í opinberri heimsókn sem hófst í morgun og halda þau af landi brott á föstudaginn 21. október.

Heimsóknin hófst með formlegri móttökuathöfn á Bessastöðum í morgun, heimsókn í Alþingi og Veröld, hús Vigdísar Finnbogadóttur og á morgun fara íslensku forsetahjónin með finnsku sendinefndinni á Vesturland. Farið verður í ísgöngin á Langjökli og forsetahjónum Finnlands gefið færi á að sjá með eigin augum hvernig jökullinn hefur hopað á undanförnum árum.

  • Elíza Reid, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Jenni Haukio, Sauli Niinistö, forseti Finnlands, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Gunnar Sigvaldason. - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum