Hoppa yfir valmynd
20. október 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Starfshópur um fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum

Ármann Kr. Ólafsson hefur verið skipaður formaður starfshópsins. - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur í samráði við matvælaráðuneytið skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að leggja til nýtt fyrirkomulag að eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum.

Eftirlit á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og matvælalaga hefur verið til skoðunar undanfarin ár, sem hefur leitt í ljós að tilefni er til að endurskoða núverandi kerfi.  Starfshópurinn mun við vinnu sína taka mið að skýrslu Ríkisendurskoðunar um Matvælastofnun (2013) og skýrslu KPMG um framkvæmd eftirlits heilbrigðisnefnda (2020).

Gert er ráð fyrir að tillögur skipaðs starfshóps lúti m.a. að því að samþætta leyfisútgáfu á einum stað, að leyfisskilyrði verði samræmd um allt land og þau liggi fyrir áður en sótt er um leyfi, að eftirlit með starfsemi verði háttað með sama hætti um allt land og taki mið af áhættu þannig að dregið verði úr afskiptum af rekstri með litla áhættu. Starfshópnum er þá falið að hafa samráð við hagaðila og viðkomandi stofnanir við vinnuna.

Guðlaugur Þór Þórðarson: „Það eru brotalamir á núverandi kerfi sem þarf að laga og tryggja að eftirlit sé skilvirkt og samræmt um allt land. Ég hef þær væntingar að starfshópurinn skoði vel nýjar leiðir við framkvæmd eftirlits með það að markmiði að lögbundnu eftirliti sé sinnt af skilvirkni og frumkvæði og í því skyni að auka möguleika á sérhæfingu og hagkvæmni.“

 

Starfshópinn skipa:

Ármann Kr. Ólafsson, formaður,

Gunnar Alexander Ólafsson, sérfræðingur,

Sigríður Gísladóttir, dýralæknir.

 

Með hópnum starfa Kjartan Ingvarsson og Íris Bjargmundsdóttir, lögfræðingar frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.

Starfshópurinn á að skila tillögu til ráðherra fyrir 1. mars 2023.

 

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum