Hoppa yfir valmynd
21. október 2022 Matvælaráðuneytið

Greiðslumark mjólkur samþykkt fyrir 2023

Greiðslumark mjólkur samþykkt fyrir 2023 - myndiStock/naturalbox

Framkvæmdanefnd búvörusamninga hefur samþykkt að greiðslumark mjólkur á árinu 2023 verði 149 milljónir lítra. Það nemur 1,7% aukningu frá yfirstandandi ári, eða 2,5 milljónum lítra.

Hækkun greiðslumarksins er tilkomin vegna aukinnar sölu mjólkurafurða. Bændum verður heimilt að setja fyrrgreint magn á innanlandsmarkað á næsta ári og fá opinbert lágmarksverð fyrir sem nú nemur tæpum 117 krónum á lítra.

Til að kúabændur hafi svigrúm til að aðlagast, er ákvörðunin tekin og tilkynnt fyrr á framleiðsluárinu en alla jafna. Söluaukning mjólkurafurða er meiri en síðustu ár, t.a.m. var greiðslumarkið 144 milljónir lítra árið 2017, 145 milljónir árin 2018-2021 og er 146,5 milljónir lítra fyrir 2021.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun gefa út reglugerð vegna greiðslumarksins síðar á árinu og mun hún taka gildi 1. janúar 2023.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum