Hoppa yfir valmynd
21. október 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Örugg netnotkun barna

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Þorvar Hafsteinsson, formaður Heimilis og skóla, við undirritun samnings - mynd

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur veitt Heimili og skóla viðbótarstuðning til SAFT-verkefnisins. Markmið SAFT er að verja börn og ungmenni gegn hatursorðræðu, ólöglegu og meiðandi efni á netinu og stuðla að vitundarvakningu í samfélaginu.

SAFT-verkefnið (Samfélag, fjölskylda og tækni) er starfrækt sem hluti af aðgerðum Evrópusambandsins til að stuðla að öruggri netnotkun og samstarfi Evrópuríkja.

Markmið SAFT-verkefnisins er að

  • reka vakningarátak um örugga og jákvæða notkun netsins og annarra nýmiðla meðal barna og ungmenna, foreldra, kennara, fjölmiðla og þeirra sem starfa við upplýsingatækni,
  • stuðla að stafrænni borgaravitund barna og ungmenna, auknu netöryggi og persónuvernd barna og ungmenna á netinu,
  • berjast gegn ólöglegu efni á netinu og að veita börnum og ungmennum aðstoð í því skyni,
  • vinna gegn hatursorðræðu á netinu með hliðsjón af Evrópuráðsverkefninu „Ekkert hatur“.

„Börn og ungmenni verja meiri og meiri tíma á netinu og þörfin fyrir öryggri netnotkun aldrei verið meiri. Við þurfum að vera sívakandi fyrir hatursorðræðu og ofbeldi á vefmiðlum og mikilvægt að foreldrar fylgist vel með netnotkun barna sinna,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. „Heimili og skóli gegnir mikilvægu hlutverki í að tengja saman börn, foreldra, skóla, sveitarfélög og stjórnvöld og ég vænti þess að samtökin taki virkan þátt í þeim viðamiklu breytingum sem standa yfir í menntakerfinu og málefnum barna.“

SAFT hefur verið starfrækt og styrkt árum saman af íslenskum stjórnvöldum og Evrópusambandinu. Ekki fékkst styrkur frá Evrópusambandinu á þessu ári. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur því ákveðið að veita 15 m.kr. fjárframlagi til viðbótar við 15 m.kr. árlegt framlag ríkisins til nýtingar í eftirfarandi verkefni: Gegn hatursorðræðu, útgáfu á fræðsluefni fyrir börn, foreldra og starfsfólk skóla, rannsóknir og greiningar er varða stafræna borgaravitund, vegna verkefna UngSAFT og vegna fyrirlestra og fræðslu á vettvangi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum