Hoppa yfir valmynd
21. október 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Víðtækari bólusetning gegn HPV veirunni til að auka vörn gegn krabbameini

Heilbrigðisráðherra áformar að almenn bólusetning gegn HPV veiru (e. Human Papilloma Virus) verði boðin öllum börnum óháð kyni og að jafnframt verði innleitt nýtt breiðvirkara bóluefni sem veitir víðtækari vörn gegn krabbameini af völdum veirunnar.

Til eru fjölmargar gerðir HPV veira. Margar þeirra valda engum einkennum, aðrar valda kynfæravörtum og nokkrar tegundir geta valdið krabbameini. Leghálskrabbamein er algengasta krabbameinið af völdum HPV veirunnar en hún getur einnig valdið krabbameini í ytri kynfærum, endaþarmi, munni og hálsi.

Frá árinu 2011 hefur 12 ára stúlkum hér á landi boðist bólusetning við HPV veirunni með bóluefninu Cervarix. Finnland og Noregur hafa einnig notað það bóluefni. Svíþjóð og Danmörk nota breiðvirkara bóluefni að nafni Gardasil sem Ísland mun nú hefja notkun á við almennar bólusetningar.

Ávinningur af bólusetningu gegn HPV veirunni er mikill en oft kemur fullur ávinningur ekki í ljós fyrr en 15-20 árum eftir að reglubundin bólusetning hefst. Góð bólusetningarþátttaka skiptir því miklu máli. Frá því að bólusetning stúlkna hófst hér á landi árið 2011 hefur þátttakan verið um 90% sem lofar góðu um árangurinn til lengri tíma litið. Notkun breiðvirkara bóluefnis sem gefið er öllum börnum mun skila enn meiri ávinningi í baráttunni gegn krabbameini af völdum HPV veirunnar.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum