Hoppa yfir valmynd
25. október 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Styrkveitingar Orkusjóðs hækkaðar um 200 milljónir og hafa aldrei verið hærri

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ávarpar fundinn. - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að bæta 200 milljónum króna við þá fjárhæð sem Orkusjóður hefur til úthlutunar á þessu ári. Ráðherra greindi frá þessu í ávarpi sínu á fundi Orkusjóðs og Orkustofnunar í dag.

Á fundinum, sem haldinn var samstarfi við Grænu orkuna, fluttu fulltrúar nokkurra þeirra verkefna sem hljóta styrk þetta árið örerindi um sín verkefni. Kynningunum var ætlað að sýna breidd og fjölda verkefna sem sjóðurinn styrkir.

Í ávarpi Guðlaugs Þórs kom fram að aldrei hefur verið úthlutað hærri fjárhæð úr Orkusjóði en á þessi ári, en úthlutanir ársins nema alls 1,1 milljarði króna.

Mikil eftirspurn hefur verið eftir styrkjum úr sjóðnum, sem hefur verið að styrkjast ár frá ári. Alls bárust um 200 umsóknir að upphæð 4 milljarða kr. vegna úthlutunar ársins 2022 og hefur þegar verið úthlutað styrkjum vegna 137 verkefna. Sú viðbót sem sjóðurinn fær nú mun verða úthlutað til að styrkja enn frekar við verkefni sem skiluðu inn umsókn.

Ráðherra sagði eftirspurnina mikla eða um fjórfalda þá upphæð sem sjóðurinn hefur úr að spila.

„Sem betur fer er áhugi fjárfesta og frumkvöðla mikill, en þeir leggja til meirihluta fjármagnsins til verkefna á móti sjóðnum. Við þurfum líka að virkja áfram þennan slagkraft sem þar er að finna. Það er líka afar hvetjandi að sjá áhugann á orkuskiptum og þann fjölda raunhæfra verkefna sem í dag voru kynnt og þá grósku og fjölbreytni sem þau einkennir. Verkefnin eiga mörg hver það sammerkt að þau eru strax frá gangsetningu að vinna að orkuskiptum. Það er sérstaklega ánægjulegt að geta bætt enn frekar í sjóðinn enda bárust mjög margar góðar umsóknir að þessu sinni.  Þá er ekki síður ánægjulegt hve vel hefur tekist að styðja við dreifingu verkefna um land allt við úthlutun styrkja. Enda mjög mikilvægt að enginn landshluti verði eftir þegar kemur að grænu orkuskiptunum,“  sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Ráðherra hvatti ennfremur fólk af öllum kynjum til að kynna sér sjóðinn og sækja um á næsta ári. Samkvæmt tölfræði sem ráðherra lét taka saman fyrir fundinn, voru konur aðeins 16% umsækjenda og sagði Guðlaugur Þór það hlutfall ekki endurspegla samfélagið nógu vel.

Styrkveitingar Orkusjóðs eru hluti af aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og orkuskiptum.

  • Styrkveitingar Orkusjóðs hækkaðar um 200 milljónir og hafa aldrei verið hærri - mynd úr myndasafni númer 1
  • Styrkveitingar Orkusjóðs hækkaðar um 200 milljónir og hafa aldrei verið hærri - mynd úr myndasafni númer 2
  • Styrkveitingar Orkusjóðs hækkaðar um 200 milljónir og hafa aldrei verið hærri - mynd úr myndasafni númer 3

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

7. Sjálfbær orka
13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum