Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2022 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogaumræðum á þingi Norðurlandaráðs

Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, og Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar. Mynd/norden.org - mynd

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var viðstödd setningu Norðurlandaráðsþings í Helsinki í dag. Þar tók hún þátt í leiðtogaumræðum þar sem umræðuefnið var framtíð norræns samstarfs og hlutverk Norðurlanda í umheiminum. Þingið sem er hið 74. í röðinni stendur fram á fimmtudag.

Í ávarpi sínu í leiðtogaumræðunum sagði forsætisráðherra að innrásarstríð Rússlands í Úkraínu og það ástand sem það hefur skapað í Evrópu hafi dregið fram mikilvægi samvinnu og samstöðu Norðurlandanna.

„Lýðræði, virðing fyrir mannréttindum og öflugt réttarríki eru þær grunnstoðir sem við byggjum samfélög okkar á og gera okkur betur kleift að mæta ógnum og tryggja velsæld fyrir íbúa. En lýðræðið á víða undir högg að sækja og alræðisöfl virðast vera að eflast,“ sagði forsætisráðherra. Hún ræddi einnig mikilvægi þess að Norðurlöndin beiti sér fyrir kjarnorkuafvopnun á alþjóðavettvangi.

Fyrr í dag funduðu norrænu forsætisráðherrarnir og ræddu meðal annars um loftslagsmál, græn umskipti og stöðuna á vinnu við framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar til 2030 um Norðurlönd sem sjálfbærasta og samþættasta svæði heims.

Þá átti forsætisráðherra tvíhliða fund með Ulf Kristersson, nýjum forsætisráðherra Svíþjóðar. Þar ræddu þau sterk tengsl og árangursríkt samstarf landanna og mikilvægi norrænnar samvinnu. Forsætisráðherrarnir ræddu einnig stöðuna í öryggis- og varnarmálum í Evrópu og aðild Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu.

  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands. Mynd/norden.org - mynd
  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á blaðamannafundi norrænu forsætisráðherranna. Mynd/norden.org - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum