Hoppa yfir valmynd
25. nóvember 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Tilnefning í Æskulýðsráð

Mennta- og barnamálaráðuneytið leitar eftir tilnefningum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka um fulltrúa í Æskulýðsráð fyrir tímabilið 2023–2024 sbr. reglugerð nr. 1088/2007. Tilnefna skal konu og karl til setu í Æskulýðsráði til tveggja ára og í tilnefningunni skal koma fram vilji tilnefndra einstaklinga til að taka að sér setu í ráðinu. Með tilnefningu skal fylgja yfirlit yfir reynslu og þekkingu tilnefndra á starfi æskulýðsfélaga eða æskulýðssamtaka og yfirlýsing um að viðkomandi uppfylli ákvæði 10. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007.

Ráðuneytið hefur hafið undirbúning á endurskoðun æskulýðslaga í samræmi við stefnu ráðuneytisins um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna. Endurskoðun laganna verður unnin í samstarfi við Æskulýðsráð á tímabilinu.

Tilnefningar þurfa að berast mennta- og barnamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík, bréflega í síðasta lagi fimmtudaginn 15. desember 2022.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum