Hoppa yfir valmynd
20. desember 2022 Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd skilar umsögn um umsækjanda um embætti dómanda við Endurupptökudóm

Þann 28. október 2022 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði laust til umsóknar eitt embætti dómanda og eitt embætti varadómanda við Endurupptökudóm. Umsóknarfrestur rann út 14. nóvember 2022 og barst ein umsókn, frá Stefáni Geir Þórissyni lögmanni og varadómanda við Endurupptökudóm.

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni um umsækjandann og er það niðurstaða nefndarinnar að Stefán Geir Þórisson sé vel hæfur til að hljóta skipun í embætti dómanda við Endurupptökudóm.

Dómnefndina skipuðu: Eiríkur Tómasson, formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Kristín Benediktsdóttir, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.

Umsögn dómnefndar má finna hér.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum