Hoppa yfir valmynd
20. desember 2022 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Kría auglýsir eftir umsóknum um fjárfestingu

Kría – sprota- og nýsköpunarsjóður auglýsir eftir umsóknum um fjárfestingu í sérhæfðum sjóðum sem hafa þann tilgang að fjárfesta í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2023.

Hlutverk Kríu er að stuðla að uppbyggingu og framþróun fjármögnunarumhverfis sprota- og nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi með því að fjárfesta í sérhæfðum fjárfestingarsjóðum, svokölluðum vísisjóðum (e. venture capital funds), sem sjálfir fjárfesta í nýskapandi sprotafyrirtækjum. Þeir vísisjóðir sem Kría fjárfestir í þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði, en meginatriðið er að þeir leggi áherslu á fjárfestingar í sprotafyrirtækjum á fyrstu stigum fjármögnunar. Kría er sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins og heyrir undir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Sjóðurinn starfar skv. lögum um Kríu – sprota og nýsköpunarsjóð.

Heildarfjárhæð sem Kría hefur til fjárfestinga á þessu umsóknartímabili er allt að 1 milljarður króna. Að hámarki getur eignarhlutur Kríu í hverjum sjóði verið 30% af heildarfjármagnsframlagi og óinnheimtu stofnfé viðkomandi sjóðs en aldrei numið hærri fjárhæð en 2 milljörðum króna. 

Allar frekari upplýsingar um skilyrði fyrir fjárfestingu Kríu og nauðsynleg fylgigögn með umsókn má nálgast á vefsíðu sjóðsins. Sérhæfðir sjóðir sem telja sig uppfylla skilyrði fyrir fjárfestingu frá Kríu geta nálgast umsóknareyðublöð og allar frekari upplýsingar með því að hafa samband við umsoknir@kriaventures.is

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum