Hoppa yfir valmynd
23. desember 2022 Innviðaráðuneytið

Endanleg framlög Jöfnunarsjóðs fyrir árið 2022 – framlög til jöfnunar á útgjöldum hækkuð fyrir árið 2022

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun á tekjujöfnunarframlagi, útgjaldajöfnunarframlagi og framlagi vegna tekjutaps fasteignaskatts fyrir árið 2022. Þá hefur ráðherra samþykkt úthlutun á framlagi vegna nemenda sem þurfa að sækja tónlistarskóla utan síns sveitarfélags fyrir skólaárið 2022-2023. Jafnframt hefur ráðherra samþykkt tillögu um áætluð framlög til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2023, ásamt reglugerð þar að lútandi. 

Útgjaldajöfnunarframlög árið 2022

Ráðherra samþykkti tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun á útgjaldajöfnunarframlögum fyrir árið 2022, samkvæmt. 14. grein reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 1088/2018. Samþykkt var að hækka útgjaldajöfnunarframlög sjóðsins vegna ársins 2022 um 600 milljónir króna. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi.

Framlögin nema samtals 12,6 milljörðum króna. Þar af eru framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli á árinu um 750 milljónir króna og framlög vegna akstursþjónustu fyrir fatlaða úr dreifbýli nema 18 milljónum. Til greiðslu á árinu hafa komið um 9,6 milljarðar króna. Eftirstöðvar framlaga eru tæpir 3,0 milljarðar og koma til greiðslu milli jóla og nýárs. Meðtalin í þeirri greiðslu eru viðbótarframlög vegna skólaaksturs, um 175 milljónir króna og 18 milljóna króna framlag vegna akstursþjónustu fyrir fatlaða úr dreifbýli. 

Tekjujöfnunarframlög árið 2022

Þá var samþykkt tillaga ráðgjafarnefndarinnar um endurskoðaða úthlutun á tekjujöfnunarframlögum fyrir árið 2022, samkvæmt 13. grein reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 1088/2018. Við endurskoðun var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna tekna á árinu 2021.

Heildarúthlutun tekjujöfnunarframlaga í ár nemur 1,4 milljarði króna. Um ¾ hlutar framlaganna, 1,05 milljarðar komu til greiðslu í nóvember. Eftirstöðvar framlaga, 350 milljónir króna, koma til greiðslu milli jóla og nýárs.

Framlag til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts árið 2022 

Ráðherra samþykkti jafnframt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um endurskoðaða úthlutun á framlagi til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts fyrir árið 2022, samkvæmt reglugerð nr. 80/2001. Endurskoðun tekur mið af auknu ráðstöfunarfjármagni sjóðsins til greiðslu framlagsins.

Heildarúthlutun framlagsins í ár nemur 5,9 milljörðum króna. Nú þegar hafa um 4,86 milljarðar komið til greiðslu. Eftirstöðvar framlagsins, um 1,04 milljarðar króna, koma til greiðslu milli jóla og nýárs.

Framlög Jöfnunarsjóðs vegna nemenda sem sækja tónlistarnám utan síns sveitarfélags skólaárið 2022-2023

Ráðherra samþykkti tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun á framlögum, fyrir skólaárið 2022-2023, vegna nemenda sem þurfa að sækja tónlistarskóla utan síns sveitarfélags. Það er gert á grundvelli 7. greinar reglna frá 31. ágúst 2016. Framlagið byggist á samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um eflingu á tónlistarnámi og jöfnun á aðstöðu nemenda til tónlistarnáms.

Framlag á hvern nemanda fyrir skólaárið 2022-2023 er 553.688 krónur og samþykktar voru umsóknir fyrir 22 nemendur. Heildarupphæð framlaga er því um 12,2 milljónir króna sem greiðist í jöfnum greiðslum á tólf mánuðum. Við greiðslu framlags fyrir desember fer jafnframt fram greiðsla vegna framlaga fyrir september, október og nóvember. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum