Hoppa yfir valmynd
23. desember 2022 Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

Stuðningur við Bergið fyrir ungt fólk í vanda

Willum Þór Þórsson, Sigurþóra Bergsdóttir framkvæmdastjóri Bergsins og Ásmundur Einar Daðason - mynd

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra undirrituðu í gær styrktarsamning við Bergið – Headspace, stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri.

Markmiðið er að styðja við starfsemi Bergsins í að veita ungu fólki aðgang að ráðgjöf og stuðningi vegna geðrænna áskorana á borð við kvíða, þunglyndi, depurð, sjálfsvígshugsanir, skaðlega notkun vímuefna og áfallastreitu.

„Við þurfum virk og fjölbreytt úrræði án hindrana til að grípa ungt fólk þegar það þarf á hjálp að halda. Þannig komum við í veg fyrir stærri áskoranir síðarmeir og byggjum upp farsæla einstaklinga til langs tíma,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Sérstaklega er ætlað að styðja við ungt fólk sem ekki hefur sótt sér þjónustu annars staðar. Þá skal lögð áhersla á að brúa bilið yfir í aðra farsældarþjónustu, þá sérstaklega ef þörf er á langtíma eftirfylgd eða þjónustu.

,,Að bæta og auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu er forgangsmál. Þannig tryggjum við að sem flestir fái viðeigandi þjónustu á réttum tímapunkti. Þjónusta Bergsins við ungmenni fellur vel að þeim áherslum og hefur gefið góða raun,“ segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra.

Samningnum er einnig ætlað að styðja við velsældaráherslur ríkisstjórnarinnar og stuðla að samþættingu þjónustu í þágur farsældar barna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum