Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Gjaldskrárbreytingar í heilbrigðisþjónustu um áramót

Greiðslur til sjúkratryggðra og gjöld sjúkratryggðra fyrir heilbrigðisþjónustu hækkuðu almennt 1. janúar sl. um 10,6% í samræmi við verðlagsforsendur fjárlaga. Þannig hækkuðu meðal annars sjúkradagpeningar og  bætur slysatrygginga um 10,6%. Aftur á móti helst greiðsluþáttaka vegna lyfjakostnaðar óbreytt ásamt komugjöldum í heilsugæslu. Einnig er haldið áfram með lækkun greiðsluþáttöku lífeyrisþega vegna tannlæknaþjónustu.

Óbreytt komugjöld í heilsugæslu endurspegla vilja stjórnvalda til að jafna aðgengi að heilbrigðiskerfinu þar sem heilsugæslan er oftast fyrsti viðkomustaðurinn. Þetta gjald helst því óbreytt og sem fyrr greiða börn, aldraðir og öryrkjar ekkert komugjald í heilsugæslu. Engar breytingar voru heldur gerðar á fjárhæðum sem kveða á um hámarksgreiðslur sjúkratryggðra vegna lyfjakostnaðar samkvæmt greiðsluþátttökukerfi lyfja

Lífeyrisþegar greiða minna fyrir tannlæknaþjónustu

Greiðsluþátttaka lífeyrisþega fyrir tannlæknaþjónustu hefur verið lækkuð markvisst síðustu ár. Áfram er haldið á þeirri braut. Þann 1. janúar lækkaði hlutur lífeyrisþega í tannlæknakostnaði úr 37% í 31%. Áætlað er að aukin útgjöld sjúkratrygginga vegna þessarar breytingar nemi um 270 milljónum króna á ársgrundvelli.

Ýmis umbótavinna er í gangi í heilbrigðisráðuneytinu varðandi vottorð, tilvísanir og fleira. Gætu sumar reglugerðir því tekið breytingum aftur síðar á árinu. Hér á eftir er listi yfir þær reglugerðir sem vísað er til í fréttinni, listinn er ekki tæmandi yfir þær reglugerðir sem tóku breytingum nú um áramótin:

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum