Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Úthlutaði 30 milljónum kr. í styrki til að vinna gegn fíknisjúkdómum

     - myndStjórnarráðið

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 30 milljónum króna í styrki til frjálsra félagasamtaka vegna verkefna sem miða að því að vinna gegn fíknisjúkdómum. Alls hlutu fjögur félagasamtök styrki til sex skilgreindra verkefna.

Styrkirnir voru auglýstir til umsóknar í október síðastliðnum. Í auglýsingu kom fram að tilgangurinn væri að styðja við verkefni á sviði heilsueflingar og forvarna sem vinna gegn fíknisjúkdómum í samfélaginu. Þar með væru talin verkefni tengd skaðaminnkun og snemmtækum inngripum. Mat á styrkhæfni miðaðist við að verkefnin væru byggð á faglegum grunni, hefðu raunhæf markmið, skýrt upphaf og endi og að árangur þeirra yrði metinn.

SÁÁ hlaut samtals 18,3 milljónir króna til tveggja verkefna

  • Veittar eru 8,3 milljónir króna í verkefnið batastuðningur jafningja. Í því felst að þróa og prófa batastuðning jafningja innan eftirfylgdar ungmenna á göngudeild SÁÁ.
  • Veittar eru 10,0 m.kr. til áframhaldandi þróunar foreldrafærninámskeiða um allt land sem eiga að hjálpa foreldrum/umönnunaraðilum að takast á við, grípa inn í og sporna gegn því að vímuefnavandi ungmenna þeirra þróist út í alvarlegri vímuefnanotkun. Styrkurinn nýtist til að aðlaga námskeiðsformið að fjar- og staðkennslu og tryggja aðgengi að námskeiðunum á landsvísu.

Rótin hlaut samtals 8,2 milljónir króna til tveggja verkefna

  • Veittar eru 4,2 m.kr. til verkefnis um heilbrigðisþjónustu fyrir jaðarsettar konur. Markmiðið er að bjóða heimilislausum konum upp á lágþröskulda heilbrigðisþjónustu í nærumhverfi og verður hún í boði í neyðarskýlinu Konukoti hálfan dag í viku.
  • Veittar eru 4,0 m.kr. vegna alþjóðlegrar ráðstefnu um stefnumótun í áfengis- og vímuefnamálum sem haldin verður á Íslandi 1.-2. október 2023 þar sem sérstök áhersla verður lögð á kynjasjónarmið. Hvati að ráðstefnunni er handbókin Implementing a Gender Approach in Drug Policies: Prevention, Treatment and Criminal Justice sem kom út á vegum Pompidou-hóps Evrópuráðsins á liðnu ári.

Samhjálp hlaut 2,0 milljónir króna – innleiðing áfallamiðaðrar nálgunar í meðferðstarfi

  • Unnið verður að innleiðingu áfallamiðaðrar nálgunar í meðferðarstarfi undir handleiðslu erlends sérfræðings. Innleiðingarferlið hefst á meðferðarheimilinu Hlaðgerðarkoti á þessu ári. Styrknum er ætlað að fjármagna fyrsta hluta innleiðingarinnar sem felst í rafrænu grunnnámskeiði um efnið

Sorgarmiðstöðin hlaut 1,5 milljónir króna – stuðningur við aðstandendur

  • Markmið verkefnisins er að búa til fræðsluefni fyrir syrgjendur sem misst hafa ástvin af völdum fíknar. Styrkurinn verður nýttur til að fjármagna kynningu og dreifingu fræðsluefnisins og kosta gerð fyrirlestrar sem verður aðgengilegur á vefsíðu Sorgarmiðstöðvarinnar. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum