Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2023 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra fundaði með kanslara Þýskalands í Berlín

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Olaf Scholz, kanslari Þýskalands. - myndMynd: Bundesregierung/Denzel

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, áttu tvíhliðafund í Berlín í dag. Á fundinum ræddu þau m.a. um tvíhliða samtarf Íslands og Þýskalands, málefni Úkraínu, stöðu öryggismála í Evrópu og málefni norðurslóða.

Forsætisráðherra gerði kanslara Þýskalands einnig grein fyrir áherslum formennsku Íslands í Evrópuráðinu og ræddi um leiðtogafund Evrópuráðsins sem fram fer í Reykjavík í maí nk. Þá ræddu forsætisráðherra og kanslari Þýskalands um græna orkuframleiðslu og loftslagsmál. Að lokum ræddu þau um stöðuna í Úkraínu og öryggismál í Evrópu. Að loknum fundinum var haldinn blaðamannafundur þar sem forsætisráðherra og kanslari Þýskalands svöruðu spurningum fjölmiðla.

Fyrr í dag heimsótti forsætisráðherra höfuðstöðvar íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Klang Games sem er stærsta íslenska fyrirtækið í Berlín. Forsætisráðherra tók einnig þátt í hádegisviðburði á vegum hugveitunnar Körber Stiftung þar sem rætt var um innrásina í Úkraínu, formennsku Íslands í Evrópuráðinu, mannréttindi, lýðræði og alþjóðamál. Viðburðinn sátu þingmenn ólíkra flokka, fræðimenn og sérfræðingar á sviði alþjóðamála.

  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Olaf Scholz, kanslari Þýskalands. Mynd: Bundesregierung/Denzel - mynd
  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ásamt Munda Vonda og Oddi Snæ Magnússyni, tveimur af stofnendum Klang Games. - mynd
  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Nora Müller, yfirmaður alþjóðasviðs og skrifstofu Körber-Stiftung. Mynd: Svea Pietschmann - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum