Hoppa yfir valmynd
2. febrúar 2023 Forsætisráðuneytið

Um 90% aðgerða í framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum lokið eða komnar vel á veg

Tæplega 90% aðgerða í framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2020-2023 er annað hvort lokið eða þær komnar vel á veg. Vinna við aðrar aðgerðir er í öllum tilfellum hafin.

Framkvæmdaáætlunin byggir á ályktun sem samþykkt var á Alþingi í árslok 2019. Þar er að finna 29 aðgerðir sem ná yfir fjölbreytt svið jafnréttismála. Staða aðgerða í framkvæmdaáætluninni er dregin fram á myndrænan hátt í sérstöku mælaborði sem hefur nú verið uppfært miðað við stöðuna í janúar. Mat á stöðu aðgerða byggist á huglægu og hlutlægu mati og er unnin í samstarfi við jafnréttisfulltrúa ráðuneytanna.

Vinna við framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2024-2027 er nú hafin í forsætisráðuneytinu og er gert ráð fyrir að tillaga til þingsályktunar verði lögð fram á vorþingi 2024.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum