Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Rakaskemmdir í MS

Sameiginleg fréttatilkynning Menntaskólans við Sund, Framkvæmdaskýrslunnar – Ríkiseigna og mennta- og barnamálaráðuneytisins:

Rakaskimun á húsnæði Menntaskólans við Sund sýnir að hluti húsnæðisins hefur orðið fyrir rakaskemmdum. Loka þarf einu svæði á þriðju hæð og aðstöðu nemenda á fyrstu hæð og hefja mótvægisaðgerðir og viðgerðir.

Í kjölfar reglubundins eftirlits Framkvæmdaskýrslunnar – Ríkiseigna (FSRE) með viðhaldi skólans sl. sumar ákvað FSRE, að beiðni skólans, að fá verkfræðistofuna EFLU til að framkvæma rakaskimun og sýnatöku vegna hugsanlegrar myglu.

Það er mat Menntaskólans við Sund og mennta- og barnamálaráðuneytisins að viðgerðir á húsnæði MS þoli ekki bið til að skólastarf geti haldið áfram í ljósi niðurstaðna úttektarinnar. Lykilatriði er að komið sé í veg fyrir skaðleg áhrif rakaskemmdanna á nemendur og starfsfólk og munu fyrirhugaðar aðgerðir samkvæmt ráðgjöf EFLU og FSRE stuðla að því. Samhliða endurnýjun á rakaskemmdu byggingarefni verður farið yfir ytra byrði bygginganna til að fyrirbyggja leka og undirbúa frekari aðgerðir.

Niðurstöður úttektar EFLU voru kynntar fulltrúum FSRE, MS og mennta- og barnamálaráðuneytisins í lok janúar. Þær sýna að hluti húsnæðisins hefur orðið fyrir rakaskemmdum. Ástandið er verst á þriðju hæð í Loftsteini og einnig slæmt á fyrstu hæð austurbyggingar í Þrísteini. Loka þarf þessum tveimur svæðum til lengri tíma eða þar til að viðgerðir hafa farið fram.

Raki og mygla fundust einnig á afmörkuðum svæðum annars staðar í húsnæðinu og verður rakaskemmt byggingarefni fjarlægt og endurnýjað með sértækum viðgerðum á meðan á vetrarfríi nemenda stendur í þarnæstu viku.

Niðurstöður úttektarinnar voru kynntar fyrir starfsfólki MS og svo nemendum og foreldrum í dag.

Unnið verður að viðgerðunum með það fyrir augum að skólastarf verði fyrir sem minnstu raski á vorönn. Stærsti hluti skólans mun nýtast áfram til skólastarfs.

Uppfært 09.02.23 kl. 23:05

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum