Hoppa yfir valmynd
10. febrúar 2023 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um aukaúthlutun tollkvóta vegna innflutnings á pottablómum

Útboð tollkvóta á blómum fyrir fyrri hluta ársins 2023 var auglýst 24. október 2022.

Ekkert tilboð barst um tollkvóta pottablóma. Með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. nr. 1151/2022, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2023.

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollskrárnr.:

stk.

%

kr./stk.

Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar:

0602.9081-.9083 og 0602.9088

Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar

01.01.-30.06.23

2.200

30

0

Aðrar:

0602.9093

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

01.01.-30.06.23

3.000

30

0

Berist umsóknir um meira magn en auglýstum tollkvóta nemur skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá matvælaráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við ráðuneytið í síma 545-9700 eða á [email protected]. Sjá eftirfarandi ítarefni vegna úthlutunar tollkvóta:

Vefkerfi fyrir tollkvóti.is  Leiðbeiningar tollkvóti.is

Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is mánudaginn 13. febrúar 2023 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 23.59, mánudaginn 20. febrúar 2023.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum