Hoppa yfir valmynd
2. mars 2023 Forsætisráðuneytið

Umsækjendur um embætti varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits

Alls bárust sex umsóknir um embætti varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits en forsætisráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar 7. febrúar sl. og rann umsóknarfrestur út 27. febrúar.

Umsækjendur um embættið eru:

  • Ásgeir B. Torfason, verkefnisstjóri
  • Björk Sigurgísladóttir, framkvæmdastjóri
  • Gísli Óttarsson, framkvæmdastjóri
  • Guðrún Þorleifsdóttir, skrifstofustjóri
  • Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri
  • Sigurður Erlingsson, fv. forstjóri

Forsætisráðherra skipar í embættið til fimm ára að fenginni tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra.

Þriggja manna hæfnisnefnd sem fjármála- og efnahagsráðherra skipar mun fara yfir umsóknir og meta hæfni umsækjenda, sbr. 7. mgr. 4. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019. Einn nefndarmanna skal skipaður samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins, einn samkvæmt tilnefningu bankaráðs Seðlabankans en formaður er skipaður án tilnefningar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum