Hoppa yfir valmynd
9. mars 2023 Matvælaráðuneytið

Fjárfestingastuðningur í sauðfjárrækt

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 144/2022, V. kafla. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2022-2023 skal skilað inn rafrænt á afurd.is eigi síðar en 15. mars.

Markmið stuðningsins er að stuðla að bættum aðbúnaði sauðfjár og hagkvæmari búskaparháttum.
Skilyrði fyrir veitingu fjárfestingastuðnings er að finna í 25. gr. reglugerðarinnar og eru vegna:
a. Nýframkvæmda
b. Endurbóta á eldri byggingum

Fylgiskjöl sem skila þarf með umsókn eru:
a. Sundurliðuð kostnaðar- og framkvæmdaáætlun með tímasettri verkáætlun.
b. Byggingarleyfi eða staðfesting byggingarfulltrúa um að byggingarleyfis sé ekki krafist vegna framkvæmdar.
c. Samþykktar teikningar ef við á.
d. Leyfi þinglýstra eigenda jarðar fyrir framkvæmd.

Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið 20% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum