Hoppa yfir valmynd
22. mars 2023 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mikill afkomubati og jákvæður frumjöfnuður áætlaður í fyrsta sinn frá 2019

Fjármála- og efnahagsráðuneytið - mynd

Áætlaðar tekjur ríkissjóðs í ár verða 76 ma.kr. hærri en búist var við í fjárlögum ársins samkvæmt endurmati fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Skýrist það af meiri umsvifum en áður var gert ráð fyrir og meiri verðbólgu.

Útlit er fyrir að tekjur verði um 20 ma.kr. umfram útgjöld ríkissjóðs í ár að frátöldum vaxtatekjum- og gjöldum og því verði frumjöfnuður jákvæður sem því nemur. Yrði það í fyrsta sinn frá árinu 2019 sem frumjöfnuður er jákvæður og næst sá áfangi ári fyrr en gildandi fjármálaáætlun gerir ráð fyrir.

Nemur batinn nálægt 70 ma.kr. miðað við fjárlög ársins, en áætlað var að hann yrði neikvæður um rúmlega 50 ma.kr. Gangi núverandi áætlanir eftir verður batinn til þess að ríkissjóður heldur nokkuð aftur af eftirspurn og þar með verðbólguþrýstingi árið 2023.

Frumjöfnuður hefur reynst betri en gert var ráð fyrir og verður í jafnvægi 2023 

Hraður bati á frumjöfnuði ríkissjóðs og öflugur efnahagsbati hefur leitt til þess að skuldahlutföll ríkissjóðs og hins opinbera eru mun lægri en áður var gert ráð fyrir. Þannig er gert ráð fyrir að skuldir hins opinbera, þ.e. ríkissjóðs og sveitarfélaga, við síðustu áramót hafi verið um 40% af landsframleiðslu samanborið við 55% samkvæmt fjármálaáætlun sem lögð var fram haustið 2020. 

Frumjöfnuður batnar milli ára

Í gær birti Hagstofan bráðabirgðauppgjör opinberra fjármála fyrir árið 2022. Þar kemur fram að halli á rekstri ríkissjóðs hafi verið um 125 ma.kr. á síðasta ári, leiðrétt fyrir afkomu lánasjóða og fyrirtækja. Um 75 ma.kr. hallans má rekja til vaxtajafnaðar, sem er hátt í alþjóðlegum samanburði þrátt fyrir að skuldahlutföll séu ekki há í alþjóðlegum samanburði. Stafar það m.a. af því að verðbætur á verðtryggð lán ríkissjóðs eru gjaldfærðar á því ári sem þau falla til þótt þau verði aðeins greidd þegar lán koma á gjalddaga. Þegar kemur að þessum þáttum er framsetning ríkisfjármála á Íslandi varfærin.

Samkvæmt bráðabirgðauppgjörinu batnar frumjöfnuður ríkissjóðs milli ára. Hann var neikvæður um 185 ma.kr. árið 2021, sem er ríflega 86 ma.kr. betri niðurstaða en áætlað var í fjárlögum þess árs. Í fjárlögum ársins 2022 var gert ráð fyrir halla upp á rúmlega 131 ma.kr. það ár, en hann er nú talinn verða um 50 ma.kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum