Hoppa yfir valmynd
3. apríl 2023 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 3.apríl.  Matvælaráðuneytinu bárust 73 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 29.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð  sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 359 kr. fyrir hvern lítra.   Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverð  sem er jafnt hámarksverði, þ.e. 359 kr./ltr.

 

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 29.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 73.
  • Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði/hámarksverði var 24.   
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 2.518.863 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru      2.521.950 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 1.656.650 lítrar að andvirði 594.737.350,- kr.
  • Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra selja 65,8% af framboðnu magni. 
  • Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra fá 100% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
  • Sérstök úthlutun til nýliða er 5% af sölutilboðum eða 125.938 lítrar.   Fjöldi gildra kauptilboða frá nýliðum voru 9.
  • Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum.  Matvælaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.

Úr reglugerð um stuðning í nautgriparækt nr. 348/2022:
Jafnvægisverð: Það verð sem myndast þegar framboðið magn er jafnt og eftirspurt magn eða lægsta verð sem jafnvægismagn getur verið selt og keypt á.

Greiðslumarki sem boðið er til sölu á hærra verði en jafnvægisverði skal vísað frá markaði og á sama hátt kauptilboðum sem eru lægri en jafnvægisverð.

Öll viðskipti sem fara fram á viðkomandi markaðsdegi skulu fara fram á því jafnvægisverði sem markaðurinn gefur í það sinn eða hámarksverði.

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum