Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2023 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins

Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 1150/2022 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. júlí – 31. desember 2023.

Vöruliður:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

kg

%

kr./kg

0201/0202

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt eða fryst

01.07. - 31.12.23

348.000

0

0

0203

Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst

01.07. - 31.12.23

350.000

0

0

0207

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst

01.07. - 31.12.23

428.000

0

0

ex0207

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu

01.07. - 31.12.23

100.000

0

0

0210

Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum

01.07. - 31.12.23

50.000

0

0

ex 0406

Ostur og ystingur (**)

01.07. - 31.12.23

115.000

0

0

0406

Ostur og ystingur

01.07. - 31.12.23

190.000

0

0

1601

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum

01.07. - 31.12.23

125.000

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

01.07. - 31.12.23

200.000

0

0

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex 0406(**) en auglýstum tollkvóta nemur skal tollkvótanum úthlutað eftir hlutkesti. Úthlutun er ekki framseljanleg. Vörumagni vegna ársins 2023 er úthlutað í tvennu lagi, þ.e. því er skipt upp í tvö tímabil

Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá matvælaráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við ráðuneytið í síma 545-9700 eða á [email protected]. Sjá eftirfarandi ítarefni vegna úthlutunar tollkvóta:

Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is, fimmtudaginn 13. apríl 2023 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 23.59, miðvikudaginn 26. apríl 2023.

Matvælaráðuneytinu, 13. apríl 2023.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum