Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2023 Matvælaráðuneytið

Matvælaráðherra heimsækir Seafood Expo Global í Barcelona

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra heimsótti stærstu sjávarútvegssýningu í heimi, Seafood Expo Global í Barcelona, sem haldin var dagana 25.–27. apríl.

Ráðherra heimsótti þar m.a. íslensk fyrirtæki sem taka þátt í sýningunni en samtals er um að ræða 41 fyrirtæki sem ýmist eru með fulltrúa sína á þjóðarbás Íslandsstofu eða hafa sína eigin bása. Seafood Expo Global er nú haldin í annað sinn í Barcelona eftir að hafa verið haldin í Brussel í Belgíu síðan 1993. Um 2.000 fyrirtæki tóku þátt í sýningunni og 29.000 gestir heimsóttu viðburðinn.

„Viðburðir sem þessir eru vitnisburðir um sterka stöðu sjávarútvegs á Íslandi á heimsvísu. Fótspor og viðvera Íslands á sýningunni var mörgum númerum stærra en stærð landsins gefur til kynna og það veitti mér innblástur að sjá kraftinn og metnaðinn sem býr í íslensku þátttakendunum á sýningunni,“ sagði ráðherra um sýninguna.

Á meðan á dvöl ráðherra í Barcelona stóð tók hún þátt í kynningarviðburðinum La Ruta dels Bunyols de Baccalá sem er samstarfsverkefni Íslandsstofu, sölusamtaka saltfiskinnflyjenda í Katalóníu og kaupmanna í Barcelona, um kynningu á íslenskum saltfiski. Í ár var lögð áhersla á að kynna klassíska katalónska saltfiskréttinn bunyols sem eru eru steiktar saltfiskbollur gerðar úr íslenskum saltfisk.

Í gær heimsótti ráðherra  verksmiðju Iceland Seafood í Viladecavalls, rétt fyrir utan Barcelona, og flutti ávarp á kynningu á sjávarútvegsfyrirtækjum skráðum í Kauphöll Íslands sem fór fram á sýningarsvæðinu. Kynningin var á vegum Kauphallar Íslands, Iceland Seafood og Icelandic Trademark Holding ITH.


  • Matvælaráðherra heimsækir Seafood Expo Global í Barcelona - mynd úr myndasafni númer 1
  • Matvælaráðherra heimsækir Seafood Expo Global í Barcelona - mynd úr myndasafni númer 2
  • Matvælaráðherra heimsækir Seafood Expo Global í Barcelona - mynd úr myndasafni númer 3
  • Matvælaráðherra heimsækir Seafood Expo Global í Barcelona - mynd úr myndasafni númer 4
  • Matvælaráðherra heimsækir Seafood Expo Global í Barcelona - mynd úr myndasafni númer 5
  • Matvælaráðherra heimsækir Seafood Expo Global í Barcelona - mynd úr myndasafni númer 6

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum