Hoppa yfir valmynd
10. maí 2023 Forsætisráðuneytið

Alþjóðleg velsældar- og sjálfbærniráðstefna í Reykjavík 14.-15. júní

Forsætisráðuneytið í samvinnu við embætti landlæknis, Reykjavíkurborg og fleiri aðila stendur að alþjóðlegri velsældar- og sjálfbærniráðstefnu í Hörpu dagana 14.-15. júní nk.

Undanfarin ár hafa stjórnvöld lagt aukna áherslu á velsæld og sjálfbærni í aðgerðum sínum til auka lífsgæði almennings og komandi kynslóða. Hafa stjórnvöld mótað velsældarvísa og sérstakar velsældaráherslur auk þess að ráðast í umfangsmikla stefnumótun á sviði sjálfbærni með útgáfu grænbókar og heildarstefnu í málaflokknum síðar á þessu ári.

Ísland hefur verið virkur í þátttakandi í samstarfi velsældarríkja (Wellbeing Economy Governments) þar sem markmiðið er að styðjast við aðra mælikvarða en eingöngu landsframleiðslu til að mæla framgang ríkja og lífsgæði íbúanna. Önnur ríki í því samstarfi eru Nýja-Sjáland, Skotland, Finnland og Wales.

Ráðstefnan er liður í því að efla enn frekar vitund opinberra aðila, almenna markaðarins og almennings um mikilvægi þessara mála með það að markmiði að fleiri skref verði tekin í átt að enn öflugra velsældarhagkerfi og velsældarsamfélagi. Ráðstefnan er vettvangur fyrir frekara samstarf um velsældarhagkerfi milli Norðurlandanna og annarra þjóða sem eru leiðandi á þessu sviði.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra verða meðal þátttakenda. Þá mun fjöldi erlendra fyrirlesara koma til landsins og halda erindi. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni eru:

  • Hans Kluge, framkvæmdastjóri WHO í Evrópu
  • Lord Richard Layard, forstöðumaður Centre for Economic Performance
  • Kate Pickett og Richard Wilkinson, prófessorar og stofnendur Patron of the Equality Trust
  • Chris Brown, yfirmaður Evrópuskrifstofu WHO fyrir fjárfestingar, heilsu og þróun
  • Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri hjá Embætti landlæknis
  • Gary Gillespie, aðalhagfræðingur skosku heimastjórnarinnar
  • Georgina Sturge, rithöfundur og tölfræðingur hjá breska þinginu
  • Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor
  • Carrie Exton hjá OECD Wise Centre
  • Heikki Hiilamo prófessor
  • Rutger Hoekstra, rithöfundur og fræðimaður
  • Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ
  • Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor í sjálfbærnifræðum.

Ráðstefnan fer fram á ensku og er aðgangur ókeypis.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og skráningu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum