Hoppa yfir valmynd
5. júní 2023 Innviðaráðuneytið

Alþingi samþykkir tilfærslu verkefna Innheimtustofnunar sveitarfélaga til ríkisins

Verkefni Innheimtustofnunar sveitarfélaga, þ.á m. innheimta meðlaga munu færast til ríkisins frá og með 1. janúar 2024. Það varð ljóst í lok síðustu viku þegar Alþingi samþykkti lagafrumvarp innviðaráðherra um breytingar á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga. Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra á Blönduósi mun taka að sér stjórnsýsluverkefni Innheimtustofnunar, en sýslumenn eru innheimtumenn ríkissjóðs.

Markmiðið með tilfærslu verkefnanna til ríkisins er að skapa trausta umgjörð um innheimtu meðlaga og annarra framfærsluframlaga, einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, stuðla að jákvæðri þróun starfseminnar og bæta þjónustu við meðlagsgreiðendur. 

Þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, mælti fyrir lagafrumvarpinu í mars sagði hann að um langt skeið hafi verið hugmyndir um að færa verkefni stofnunarinnar til ríkisins. Árið 2021 hafi verkefnisstjórn verið skipuð til að annast skoðun á skipulagi og rekstri Innheimtustofnunar. Í tengslum við þá vinnu hafi ráðuneytið gert samning við Ríkisendurskoðun um að framkvæma stjórnsýsluúttekt á Innheimtustofnun. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar hafi verið lagt til að innheimtumanni ríkissjóðs yrði falin ábyrgð á innheimtu meðlaga en því fælist mikil og augljós hagræðing.

Innviðaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið komust að sameiginlegri niðurstöðu um að í ljósi langrar reynslu sýslumannsembættanna af innheimtu ýmissa opinberra gjalda og góðs árangurs innheimtumiðstöðvarinnar á Blönduósi, væri verkefnið best staðsett hjá sýslumanninum á Norðurlandi vestra, þótt aðsetur starfsfólks verði einnig áfram á höfuðborgarsvæðinu og á Ísafirði. 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum