Hoppa yfir valmynd
8. júní 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

200.000 tonn af tækifærum – beint streymi

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra,  skipaði sl. haust starfshóp sem fékk það hlutverk að setja fram tillögur um það hvernig flýta megi innleiðingu hringrásarhagkerfis.

Starfshópurinn hefur nú skilað ráðherra tillögum sínum „200 þúsund tonn af tækifærum“ um aðgerðir til koma verkefnum sem tengjast hringrásarhagkerfinu af stað. Heiti kynningarinnar vísar til þess að við vinnu sína kortlagði hópurinn um 200 þúsund tonn úrgangi sem hefur hingað til verið urðaður, en sem breyta má í verðmæti og draga þannig úr sóun.

Starfshópurinn kynnir tillögur sínar í dag fimmtudaginn 8. júní kl. 15 og hægt verður að fylgjast með kynningunni í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum