Hoppa yfir valmynd
5. júlí 2023 Utanríkisráðuneytið

Ísland kaupir búnað til sprengjuleitar fyrir Úkraínu

Ísland, ásamt Norðurlöndunum og Litáen, tekur þátt í leiða þjálfunarverkefni í sprengjuleit og eyðingu sem hófst í mars síðastliðnum. Í tengslum við verkefnið hefur verið ákveðið að Ísland leggi til grunnbúnað fyrir þátttakendur að andvirði um 50 milljóna króna og nýtist við þjálfunina. Búnaðurinn verður fluttur til Úkraínu að loknu hverju námskeiði. Þar verður hann notaður við leit að jarðsprengjum og eyðingu.

„Gríðarleg landflæmi í Úkraínu er nú undirlagt jarðsprengjum. Þetta veldur gríðarlegri hættu til bæði lengri og skemmri tíma, bæði fyrir úkraínska hermenn og svo almenning til langrar framtíðar. Ísland hefur fram að færa þekkingu og reynslu sem getur nýst í þessu mikilvæga verkefni. Ég er mjög þakklátt þeim sem leggja sitt af mörkum í þessari þjálfun og tel mikilvægt að við höldum áfram að styðja með ráðum og dáð við Úkraínu og finnum leiðir þar sem þarfir Úkraínu og geta okkar Íslendinga mætast,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Markmið verkefnisins er að gera úkraínska hernum betur kleift að finna ósprungnum sprengjum í Úkraínu og eyða þeim. Talið er að ósprungnar sprengjur af ýmsu tagi fyrirfinnist á allt að fimmtungi úkraínsks landssvæðis; landvæði sem er töluvert stærra en Ísland að flatarmáli.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum