Hoppa yfir valmynd
29. maí 2009 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 2/2009

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 22.132
  2. Gisting í einn sólarhring kr. 14.182
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr. 7.950
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag, kr. 3.975

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2009. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 6/2008 dags. 26. september 2008.

Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.

Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: http://www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html.

Reykjavík, 25. maí 2009.
Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum