Hoppa yfir valmynd
30. júní 2020

Sálfræðingar barna- og unglinga Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sálfræðingar barna- og unglinga Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins


Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir barna- og unglingasálfræðingum á starfsstöðvar sínar. Ráðið er verður í hlutastöður og fullar stöður. Ráðning er tímabundin til eins árs með hugsanlegri framlengingu. Ráðningartími er frá 1.september eða eftir nánara samkomulagi.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Sálfræðingur starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. 

Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt í nærumhverfi og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga sem hefur fjölgað mikið undanfarin ár

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is


Helstu verkefni og ábyrgð
- Sálfræðiþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri 
- Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf 
- Einstaklings- og hópmeðferð
- Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
- Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði æskileg
- Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
- Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
- Sinnir eftir þörfum foreldrum sem sækja þjónustu í mæðra-, ung-og smábarnavernd
- Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum


Hæfnikröfur
- Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
- Reynsla af greiningu og meðferð barna og unglinga með geðrænan vanda
- Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum, s.s. hugrænni atferlismeðferð
- Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
- Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
- Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Stéttarfélag er Sálfræðingafélag Íslands. 

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. 

Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu, sem og afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi.

Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.

Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. 

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslunnar við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. 


Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2020


Nánari upplýsingar veitir
Agnes Sigríður Agnarsdóttir - [email protected] - 852-1225



Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Stjórnsýsla
Álfabakki 16
109 Reykjavík


Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum