Hoppa yfir valmynd
22. febrúar 2018

Lektor í lífeðlisfræði - Háskóli Íslands, Heilbrigðisvísindasvið - Reykjavík - 201802/412

 

Lektor í lífeðlisfræði – Heilbrigðisvísindasvið – Háskóli Íslands – Reykjavík

Laust er til umsóknar 60% starf lektors í lífeðlisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands.

Lektorinn verður í 50% starfi við Lífeðlisfræðistofnun og 10% við augnlækningasvið Læknadeildar með starfsaðstöðu við Lífeðlisfræðistofnun HÍ. Lektorinn skal stunda rannsóknir á sviði lífeðlisfræði augna og kenna bæði lífeðlisfræði og augnsjúkdómafræði í samræmi við ofangreind hlutföll. Honum er jafnframt ætlað að taka þátt í uppbyggingu og eflingu fræðigreinarinnar við deildina ásamt handleiðslu meistara- og doktorsnema á þessu sviði.

Menntunar- og hæfniskröfur:

Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi á fræðasviðinu eða hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar.
Þeir skulu hafa rannsóknareynslu á sviði lífeðlisfræði og vera virkir í rannsóknum. Reynsla af rannsóknum á sviði lífeðlisfræði augna er æskileg.
Reynsla af þróun námskeiða, kennslu, og handleiðslu á sviði lífeðlisfræði er kostur.
Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, ásamt góðri færni í að miðla eigin þekkingu.

Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Læknadeildar.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. september 2018, þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um stöðuna fjalla.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Rektor er heimilt að veita framgang í starfi strax við nýráðningu uppfylli viðkomandi þau skilyrði sem kveðið er á um í reglum nr. 263/2010 um framgang og ótímabundna ráðningu akademískra starfsmanna við Háskóla Íslands.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna nr. 569/2009 um Háskóla Íslands.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.

Nánari upplýsingar veita Engilbert Sigurðsson, prófessor og deildarforseti Læknadeildar ([email protected]) og Þór Eysteinsson, prófessor og forstöðumaður Lífeðlisfræðistofnunar ([email protected]).

Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf. 

Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2018.


Umsækjendur skulu láta fylgja með umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og rannsóknaráætlun ef til ráðningar kemur. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Ef ekki er unnt að skila fylgigögnum með umsókn á rafrænu formi skal skila þeim í þríriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. 

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum