Hoppa yfir valmynd
5. desember 2019

Sérfræðingur í netöryggissveit

 

Sérfræðingur í netöryggissveit PFS (CERT-ÍS)

Póst-og fjarskiptastofnun óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings í netöryggissveit PFS. Netöryggissveitin hefur það hlutverk að fyrirbyggja, draga úr og bregðast við hættu vegna netárása eða hliðstæðra öryggisatvika í þeim tölvukerfum sem falla undir starfssvið hennar. Sveitin leitast við að greina atvik af þessu tagi, takmarka útbreiðslu þeirra og tjón af þeirra völdum. 

Helstu verkefni og ábyrgð:
Meðhöndlun öryggisatvika og greining veikleika í tölvu- og netkerfum
Upplýsingaskipti við þjónustuhóp og aðra ytri aðila 
Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi um öryggi Internetsins
Ráðgjöf og upplýsingar varðandi öryggismál á netinu
Aðstoð við uppbyggingu þekkingar í meðhöndlun öryggisatvika hjá innlendum netöryggishópum

Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf í verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða á öðrum sviðum ef viðkomandi hefur haldgóða reynslu á sviði netöryggis
Sérmenntun eða starfsreynsla á sviði hugbúnaðargerðar og/eða öryggisgreininga er æskileg
Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi
Gerð er krafa um mikla greiningarhæfni, öguð og skipulögð vinnubrögð
Búa yfir skilningi á internettækni ásamt færni til að meta upplýsingar um áhættu og áhrif
Geta til að miðla tæknilegum upplýsingum til annarra
Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og rituð, er áskilin
Umsækjendur þurfa að geta unnið undir álagi og hafa tamið sér skipulag í vinnubrögðum

PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsóknarfrestur er til og með 16. desember nk. Umsjón með starfinu hefur Þorleifur Jónasson forstöðumaður tæknideildar. Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu PFS www.pfs.is eða á Starfatorgi.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Krafist er sakavottorðs. Umsækjandi þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra.
Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma. 

Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti og póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti og tengd mál. Hjá PFS starfa 27 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, viðskiptalegra og lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar. Sjá nánari upplýsingar á www.pfs.is

Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum