Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2019

Hjúkrunarfræðingur á öldrunarlækningadeild K1 Landakoti

Hjúkrunarfræðingur á öldrunarlækningadeild K1 Landakoti

Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings á öldrunarlækningadeild K1 Landakoti. Við bjóðum jafnt velkominn reynslubolta sem og nýútskrifaðan hjúkrunarfræðing í okkar góða hóp sem telur 30 starfsmenn. 
Deildin er 20 rúma og fer þar fram meðferð og endurhæfing sjúklinga, m.a. með hjarta- og lungasjúkdóma. Markmiðið er að auka hæfni einstaklingsins til þess að takast á við athafnir daglegs lífs og/ eða auka líkamlega, andlega og félagslega færni þeirra. Unnið er eftir hugmyndafræði endurhæfingar sem felst m.a. í því að lögð er áhersla á að endurhæfingin sé sameiginlegt verkefni milli einstaklings sem í hlut á, þeirra sem standa honum næst og þverfaglegs teymis sem viðurkennir framlag allra þeirra sem í hlut eiga.

Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Velkomið að kíkja í heimsókn, áhugasamir hafi samband við Unni deildarstjóra.

Deildin er þátttakandi í tilraunaverkefni innan Landspítala um sveigjanlegra vinnufyrirkomulag hjúkrunarfræðinga í vaktavinnu, með undirbúnings- og frágangstíma og viðbragðsvöktum sem hluta af vinnuskyldu. Markmið verkefnisins er að bæta mönnun og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á sólarhringsdeildum í bráðaþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Ákveður, skipuleggur og veitir hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðing og ber ábyrgð á meðferð
» Skipuleggur og veitir fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
» Þátttaka í teymisvinnu

Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi 
» Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
» Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
» Áhugi á hjúkrun aldraðra
» Hæfni og geta til að starfa í teymi
» Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Starfið er laust samkvæmt nánara samkomulagi. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 60 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.09.2019

Nánari upplýsingar veitir
Unnur Guðfinna Guðmundsdóttir - [email protected] - 543 9914/ 824 4630
Bára Benediktsdóttir - [email protected] - 543 1787/ 824 5909


Landspítali
Öldrunarlækningadeild A
v/Túngötu
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum