Hoppa yfir valmynd
7. mars 2019

Prestur - Laugalandsprestakall

Prestur - Laugalandsprestakall

Biskup Íslands auglýsir eftir presti til að sinna sóknarprestsþjónustu í Laugalandsprestakalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi og héraðsprestsskyldum í prófastsdæminu. Um tímabundna setningu í sóknarprestsembættið er að ræða, frá 1. apríl 2019 - 31. maí 2020.  

•        Laugalandsprestakall er myndað af Grundar-, Hóla-, Kaupangs-, Munkaþverár-, Möðruvalla- og Saurbæjarsóknum. Íbúar prestakallsins eru rúmlega 1.000 talsins. 
•        Prestsembættinu fylgja héraðsprestsskyldur allt að 50%, einkum við Akureyrarprestakall og afleysing í leyfum sóknarprests Laufásprestakalls. Prófastur ákvarðar að öðru leyti tilhögun héraðsprestsskyldna embættisins í samræmi við starfsreglur þar að lútandi. Æskilegt er að umsækjandi geti starfað óslitið sumarið 2019 vegna framangreindrar afleysingaskyldu. 
•        Umsækjendur geri skriflega grein fyrir persónulegum upplýsingum, menntun, starfsferli, samskiptahæfileikum og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.
•        Umsækjendum ber að fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að sakaskrá viðkomandi umsækjanda. Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni. Eyðublaðið er að finna á vef kirkjunnar: https://kirkjan.is/library/Images/Frettamyndir/Skjol-vegna-fretta/samthykki-fyrir-oflun-upplysinga-ur-sakaskra.pdf
•        Um laun og önnur kjör fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs.
•        Prestakallinu fylgir prestsbústaður á jörðinni Syðra- Laugalandi, Eyjafjarðarsveit. Um er að ræða íbúðarhús ásamt afmarkaðri lóð. Stefnt er að því að afhenda viðtakandi presti bústaðinn eigi síðar en 1. september 2019. 
•       Nánari upplýsingar um prestakallið eru veittar hjá sr. Jóni Ármanni Gíslasyni, prófasti Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis s. 465 2250 og á Biskupsstofu, s. 528 4000
•       Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti miðvikudaginn 20. mars 2019
•       Sækja ber um rafrænt á vef kirkjunnar: www.kirkjan.is undir laus störf.
•       Samráð verður við prófast, presta og formenn sóknarnefnda Akureyrar- og Laugalandsprestakalla við val á presti og verður þessum aðilum veittur rafrænn skoðunaraðgangur að umsóknargögnum í því skyni 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum