Hoppa yfir valmynd
9. nóvember 2017

Framhaldsskólakennari, íslenska - Menntaskólinn að Laugarvatni - Laugarvatn - 201711/1759

 

Framhaldsskólakennari í íslensku 

Við Menntaskólann að Laugarvatni er laus til umsóknar tímabundin staða árið 2018, vorönn og haustönn.

100% staða framhaldsskólakennara í íslensku.

Nánari upplýsingar um áfanga þá sem um ræðir veitir skólameistari.

Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í viðkomandi grein og kennsluréttindi. 

Leitað er að einstaklingum sem eru skapandi, með mikla kennsluhæfni og hafa samskiptahæfileika. Lögð er áhersla á frumkvæði í starfi, sjálfstæð vinnubrögð, áhuga og áreiðanleika.

Hér er um að ræða áhugavert starf við bekkjakerfisskóla sem ríkur er af sögu og hefðum. Skólinn starfar undir kjörorðunum Manngildi, Þekking, Atorka.  Í ML er góður starfsandi og öflugt þverfaglegt samstarf í þróunarstarfi skólans.  Það er mjög gott mannlíf á Laugarvatni og frábær útivistaraðstaða.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans.

Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum.  Umsókn með afritum af prófskírteinum og með upplýsingum um starfsferil og umsagnaraðila skal senda rafrænt til skólameistara Menntaskólans að Laugarvatni, á [email protected] 

Umsóknarfrestur er til 27. nóvember 2017.  Ráðningartími er frá 1. janúar 2018 til 31. desember 2018. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr.92/2008.  

Frekari upplýsingar veitir Halldór Páll Halldórsson skólameistari ([email protected]).  Vefsíða skólans er http://www.ml.is 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum