Hoppa yfir valmynd
6. júlí 2020

Sérhæfður starfsmaður/ sótthreinsitæknir, tvö störf

Sérhæfður starfsmaður/ sótthreinsitæknir


Við viljum fjölga í öflugu teymi okkar og auglýsum eftir tveimur sérhæfðum starfsmönnum í fullt starf á dauðhreinsunardeild Landspítala við Tunguháls. Ráðið er í störfin frá og með 1. september 2020 eða eftir nánara samkomulagi. Unnið er á dag- og kvöldvöktum. Nýir starfsmenn fá einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reyndra starfsmanna.

Á deildinni starfa um 16 manns í þverfaglegu teymi sem samanstendur af sérhæfðum starfsmönnum, sótthreinsitæknum og hjúkrunarfræðingum. Meginverkefni deildarinnar snúa að því að raða, pakka og dauðhreinsa verkfæri sem notuð eru á skurðstofum spítalans auk þess að sjá um að pakka og dauðhreinsa verkfæri frá öðrum starfsstöðvum innan og utan spítalans. Starfsemi deildarinnar er mikilvægur þáttur í sýkingarvörnum og mikilvægur hlekkur í að tryggja öryggi sjúklinga Landspítala.


Helstu verkefni og ábyrgð
» Pökkun, röðun og dauðhreinsun verkfæra fyrir skurðaðgerðir


Hæfnikröfur
» Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli
» Menntun sem nýtist í starfi, sótthreinsitæknanám er æskilegt
» Reynsla innan heilbrigðiskerfisins er æskileg
» Jákvæðni og góð samskiptahæfni
» Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítali við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.


Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2020


Nánari upplýsingar veitir
Elín Ýrr Halldórsdóttir - [email protected] - 543 1726/ 825 5821
Elfa Hrönn Guðmundsdóttir - [email protected] - 691 7823


Landspítali
Dauðhreinsunardeild rekstur
Tunguhálsi 2
110 Reykjavík


Smellið hér til að sækja um starf


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum