Hoppa yfir valmynd
25. maí 2019

Framhaldsskólakennari í húsasmíði

 

Framhaldsskólakennari í húsasmíði

Við Verkmenntaskóla Austurlands er laus til umsóknar 25% staða framhaldsskólakennara í húsasmíði á haustönn 2019.

Umsækjendur þurfa að hafa kennsluréttindi á framhaldsskólastigi, sbr. lög nr. 87/2008 og starfsréttindi í húsasmíði. 

Leitað er eftir skipulögðum einstaklingi með góða samskiptahæfni, brennandi áhuga á skólastarfi og löngun til að vinna með ungu fólki. Mikilvægt er að geta sýnt frumkvæði í starfi og hafa góða þekkingu á ólíkum kennsluaðferðum. Kennslureynsla er æskileg. Góð tölvukunnátta er mikilvæg. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi VA. 

Umsóknir ásamt greinargerð um menntun og fyrri störf berist á tölvupóstfangið [email protected] til og með 11. júní 2019. Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Mikilvægt er að tilgreina meðmælendur í umsókninni. Afriti af prófskírteinum skal skila með umsókn ásamt sakavottorði. 

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 

Nánari upplýsingar veitir skólameistari, [email protected] . 

Á heimasíðu skólans, www.va.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans.

Skólameistari

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum