Auglýsing um þingsætatölu kjördæma við kosningar til Alþingis, nr. 322 31. maí 1995
Auglýsing um þingsætatölu kjördæma við kosningar til Alþingis
(Nr. 322 31. maí 1995)
Þingsætatala kjördæma samkvæmt a- og b- lið 1. mgr. 5. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 80 16. október 1987, sbr. lög nr. 9 27. febrúar 1995, skal vera sem hér segir við næstu almennar kosningar til Alþingis:
Reykjavíkurkjördæmi ................................................. 19 þingsæti
Reykjaneskjördæmi ................................................... 12 þingsæti
Vesturlandskjördæmi .................................................. 5 þingsæti
Vestfjarðakjördæmi .................................................... 5 þingsæti
Norðurlandskjördæmi vestra ...................................... 5 þingsæti
Norðurlandskjördæmi eystra ...................................... 6 þingsæti
Austurlandskjördæmi ................................................. 5 þingsæti
Suðurlandskjördæmi .................................................. 6 þingsæti
Þetta auglýsist hér með samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 80 16. október 1987, sbr. 2. gr. laga nr. 9 27. febrúar 1995 um breytingar á þeim lögum.
Jafnframt fellur úr gildi auglýsingu um þingsætatölu kjördæma við kosningar til Alþingis, nr. 126 27. febrúar 1995.