Hoppa yfir valmynd
8. ágúst 2019

Yfirhjúkrunarfræðingur svæðis á Heilsugæslunni á Akureyri

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 9. september nk.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Akureyri auglýsir laust starf yfirhjúkrunarfræðings svæðis á Heilsugæslunni á Akureyri. 
Um er að ræða 100% stöðu (dagvinna). Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. 

Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri hjúkrunar.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Er yfirmaður hjúkrunar á starfsstöð HSN á Akureyri og annarrar stoðstarfsemi samkvæmt skipuriti
- Skipuleggur og stjórnar hjúkrunarþjónustu heilsugæslustöðvarinnar og tekur þátt í klínísku starfi
- Stuðlar að þekkingarþróun í hjúkrun með því að hvetja til rannsókna og nýta rannsóknarniðurstöður
- Tekur þátt í gerð áætlana varðandi rekstur
- Tryggir að rekstur og starfsmannamál séu í samræmi við fjárhagsáætlun
- Tekur þátt í þverfaglegu samstarfi, þróun þjónustu og stjórnun verkefna á starfsstöðinni og þvert á stofnun 
- Hefur umsjón með starfsemi heilsugæslustöðvarinnar samkvæmt skipuriti ásamt yfirlækni
- Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu

Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi og a.m.k. 5 ára starfsreynsla við hjúkrun
- Viðbótarmenntun á sviði heilbrigðisvísinda, viðskiptafræði eða stjórnunar æskileg
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun er æskileg
- Reynsla af stjórnun er æskileg
- Góð tölvukunnátta
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini og íslenskt hjúkrunarleyfi.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu stofnunarinnar www.hsn.is og einnig er hægt að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 

Umsókn fylgi starfsferliskrá og upplýsingar um nám og fyrri störf. Umsækjendur eru auk þess beðnir um að skila kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfi og sýn á starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimiluð á vinnutíma innan HSN. 

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.09.2019

Nánari upplýsingar veitir
Guðný Friðriksdóttir - [email protected] - 860 7750
Bryndís Lilja Hallsdóttir - [email protected] - 432 4050

Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Akureyri Hjúkrun almennt
Hafnarstræti 99
600 Akureyri

Sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum