Hoppa yfir valmynd
16. október 2012 Dómsmálaráðuneytið

Lögreglusamþykkt fyrir Reykjanesbæ

Nr. 830/2012 28. september 2012

LÖGREGLUSAMÞYKKT
fyrir Reykjanesbæ.

I. KAFLI

Gildissvið.

1. gr.

Lögreglusamþykkt þessi gildir fyrir Reykjanesbæ og er gerð með vísan í reglugerð nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir sem er fyrirmynd að lögreglusamþykktum sveitar­félag­anna. Lögreglusamþykktin tekur gildi við birtingu og ber að endurskoða hana á tveggja ára fresti.

II. KAFLI

Um reglu, velsæmi og almennt öryggi á almannafæri.

2. gr.

Með almannafæri er í reglugerð þessari átt við götur, vegi, gangstéttar, gangstíga, svæði ætluð til almenningsnota og staði sem opnir eru almenningi, svo sem kvikmyndahús, leikhús, samkomuhús, söfn, veitingastaði, verslanir, leiktækjastaði, bifreiðastöðvar, biðskýli og sölu­turna innan Reykjanesbæjar.

Með leiktækjastað er átt við stað þar sem aðgangur er veittur að leiktækjum, spilakössum, knattborðum, tölvum o.þ.h., gegn gjaldi.

3. gr.

Uppþot, áflog, óspektir eða önnur háttsemi sem raskar allsherjarreglu má ekki eiga sér stað á almannafæri og ekki mega menn þyrpast þar saman ef það tálmar umferð eða veldur vegfarendum óþægindum.

Enginn má áreita aðra á almannafæri eða sýna þar af sér ósæmilega háttsemi.

4. gr.

Bannað er að hafast nokkuð að sem veldur ónæði eða raskar næturró manna.

Lögreglustjóri getur bannað notkun hátalara, hljómflutningstækja, hljóðfæra eða annars þess háttar á eða við almannafæri ef ástæða er til að ætla að hún valdi verulegu ónæði eða truflun.

Bæjarstjórn getur bannað neyslu áfengis á almannafæri á tilteknum tíma á tilteknum svæð­um í þéttbýli. Slíka samþykkt skal tilkynna lögreglustjóra og birta almenningi.

5. gr.

Þegar fjölmenni safnast saman á almannafæri svo sem í eða við biðstöðvar almennings­vagna og leigubifreiða, miðasölur, banka, veitingastaði, verslanir eða aðra afgreiðslu­staði, skal fólk að jafnaði taka tillit til þess að þeir sem fyrstir koma fái fyrstir afgreiðslu.

6. gr.

Hver sá sem staddur er á almannafæri er skyldur til að segja til nafns síns, kennitölu og heimilis þegar lögreglan krefst þess.

Skylt er að hlýða fyrirmælum sem lögreglan gefur s.s. vegna umferðarstjórnar eða til þess að halda uppi reglu á almannafæri.

7. gr.

Lögreglan getur vísað þeim mönnum í burtu af almannafæri sem með háttsemi sinni valda vegfarendum eða íbúum í nágrenninu ónæði.

Sama á við um þá sem valda óspektum, hættu eða hneykslan á almannafæri sökum ölvunar eða af öðrum ástæðum.

8. gr.

Meðferð vatns við hvers konar þrif utandyra er óheimil nema í frostlausu veðri ef það veldur rennsli á gangstétt, gangstíg eða götu þannig að valdi hættu eða óþægindum.

Í götubrunna og göturæsi má ekki hella mengandi efnum svo sem spilliefnum eða efnum sem valdið geta mengun eða skemmdum í holræsakerfinu.

Eiganda eða umráðamanni húss er skylt að fjarlægja af húsi sínu snjó og grýlukerti sem fallið geta niður og valdið hættu fyrir vegfarendur.

Eiganda eða umráðamanni húss, verktaka eða öðrum sem ábyrgð bera á verk­framkvæmdum hvers konar, er skylt að gæta fyllsta öryggis og hafa í huga þá sem eru þar vegna vinnu sinnar og þá sem þar kunna að koma vegna annarra erinda. Framfylgja skal rök­studdum tilmælum byggingarfulltrúa hverju sinni.

9. gr.

Öllum ber að gæta þess að ganga vel um á almannafæri og skemma þar ekki hluti sem ætlaðir eru til almenningsnota eða prýði. Þetta á einnig við þá hluta af húsum og öðrum mannvirkjum sem liggja að almannafæri.

Á mannvirki og hluti má ekki mála, teikna eða festa auglýsingar nema með leyfi eiganda eða umráðamanns.

Óheimilt er að reisa auglýsingaskilti á almannafæri nema með leyfi umhverfis- og skipulags­sviðs Reykjanesbæjar. Sama gildir um ökutæki hvers konar með auglýsingum sem standa yfir­gefnar og hafa þann tilgang að auglýsa á eða við almannafæri. Fylgja skal ákvæðum 32. gr. í vegalögum nr. 80/2007. Bæjarstjórn skal tilkynna lögreglustjóra um slík leyfi.

Uppfestar auglýsingar skulu hlutaðeigendur taka niður, þegar þær hafa fullnægt tilgangi sínum, og hreinsa vel staðinn þar sem þær voru hafðar. Löglega uppfestar auglýsingar má enginn rífa niður eða gera ólæsilegar á annan hátt.

10. gr.

Bæjarstjórn getur sett umgengnisreglur um skemmtigarða, leikvelli, lystigarða, tjarnir, kirkju­garða og önnur opinber svæði, enda séu reglurnar festar upp við innganginn eða á öðrum áberandi stað.

Hvorki má troða niður ræktaða bletti, grasreiti, blómabeð og limgerði á almannafæri né slíta þar upp blóm eða annan gróður.

Eigi má gista í tjöldum, húsbílum, hjólhýsum og tjaldvögnum á almannafæri í þéttbýli utan sérmerktra svæða nema með leyfi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar.

11. gr.

Tilkynna skal lögreglustjóra svo fljótt sem verða má um fyrirhugaðar hópgöngur, útifundi, tónleika og aðrar útisamkomur í því skyni að hann geti gert viðeigandi ráðstafanir varðandi stjórnun umferðar.

Lögreglustjóri getur breytt gönguleið eða samkomustað telji hann það nauðsynlegt.

12. gr.

Meðferð skotvopna á almannafæri er bönnuð nema með sérstakri undanþágu frá lög­reglu­stjóra.

Ekki má á almannafæri ganga með logandi blys, kveikja í bálköstum né halda skotelda­sýningar nema með leyfi lögreglustjóra.

13. gr.

Enga atvinnu sem tálmar umferð má reka á almannafæri.

Um farand- og torgsölu á götum, torgum og öðrum stöðum gildir samþykkt um götu- og torgsölu í Reykjanesbæ.

14. gr.

Lögreglustjóri getur bannað öllum óviðkomandi, sem ekki eiga brýnt erindi, umferð út í skip, sem liggja í höfn.

15. gr.

Ekki má gera jarðrask, svo sem skurði í gangstéttir, götur eða torg né raska þeim á annan hátt, nema með leyfi umhverfis- og skipulagssviðs. Skal umhverfis- og skipulagssvið við veitingu leyfis setja skilyrði sem nauðsynleg eru til að afstýra hættu fyrir vegfarendur og tilkynna leyfisveitingu til lögreglustjóra. Að verki loknu skal leyfishafi færa það í samt lag sem raskað var.

Þegar gerður er skurður í gangstétt skal sá sem verkið vinnur sjá um að tryggja öryggi gangandi vegfarenda og annarra, svo sem með því að sjá fyrir göngubrautum og tryggja að vegfarendur séu aðvaraðir um farartálmann, t.d. með sérstökum merkingum s.s. ljósum, glitmerkjum o.þ.h. þegar dimmt er. Slík verk skulu unnin þannig að sem minnstur farartálmi verði. Sé nauðsynlegt að loka gangstétt vegna framkvæmda, skal hjáleið tryggð og afgirt frá umferð ökutækja innan þéttbýlismarka og annars staðar þar sem umferð er mikil.

Umhverfis- og skipulagssvið getur bannað umferð um götur að nokkru eða öllu leyti meðan á verki stendur eða skipað fyrir um hvernig umferðinni skuli hagað. Haft skal samráð við lögreglustjóra og vegamálastjóra þegar það á við. Einnig getur bæjarstjórn ákveðið að skurðir í götur séu byrgðir og uppgröftur fjarlægður þannig að umferð sé óhindruð um göturnar á þeim tíma sem ekki er unnið, svo sem að næturlagi og um helgar. Þá getur umhverfis- og skipulagssvið, ef talið er að framkvæmdirnar dragast um of, látið setja í samt lag það sem raskað var á kostnað þeirra sem ábyrgð bera á framkvæmd.

Bæjarstjórn og lögreglustjóri geta sett nánari verklagsreglur.

Setja skal upp skilti og merkingar til leiðbeiningar fyrir ökumenn vegna framkvæmda sem truflað geta umferð. Sé fyrirsjáanlegt að framkvæmdir muni taka lengri tíma en 7 daga skal setja upp ítarlegri skilti þar sem fram koma upplýsingar um framkvæmdina, á hvers vegum hún er og hvað hún muni standa lengi.

Þá getur umhverfis- og skipulagssvið beint þeim fyrirmælum til ökumanna og eigenda ökutækja að þeir leggi ekki ökutækjum á tilteknum svæðum svo unnt sé að framkvæma hvers konar nauðsynlegar viðgerðir eða hreinsanir á götum. Tilmælin skulu tilkynnt með upplýsingaskiltum eða öðrum tryggum hætti. Sé slíkum tilmælunum ekki sinnt getur umhverfis- og skipulagssvið látið flytja ökutæki á brott án frekari viðvörunar svo viðgerð eða hreinsun geti farið fram. Tilkynna skal eiganda ökutækis og lögreglu um brottflutninginn og hvar má vitja ökutækisins sé það ekki flutt aftur á sama stað eftir að viðgerð eða hreinsun lýkur.

16. gr.

Húseigendum eða umráðamönnum húseigna er skylt að hlíta fyrirmælum bæjarstjórnar um frágang girðinga o.þ.h. sem liggja að almannafæri. Einnig skal húsráðendum skylt að snyrta allan gróður, þ.m.t. trjágróður sem liggur að götum, gangstéttum og gangstígum, þannig að umferð vegfarenda sé óhindruð. Bæjarstjórn getur sett nánari reglur um skerðingu gróðurs. Hlíti húseigandi eða lóðarhafi ekki fyrirmælum sveitarstjórnar um frágang samkvæmt þessari grein er heimilt að láta vinna verkið á hans kostnað enda sé honum tilkynnt um það með hæfilegum fyrirvara.

Þegar hús eða annað mannvirki brennur eða það flutt brott, án þess að annað sé byggt í staðinn, er eiganda skylt að ganga svo frá hússtæðinu að ekki stafi af því hætta, óþrifnaður eða óprýði. Sama gildir um hús sem standa yfirgefin.

Þegar hús er byggt, rifið, endurbyggt eða flutt er eiganda og/eða verktaka skylt að haga sér eftir þeim fyrirmælum sem bæjarstjórn gefur til að forðast farartálma, hættu eða óþægindi fyrir vegfarendur og skal hann setja upp skilti til leiðbeiningar eftir því sem við á. Við flutning húsa skal eigandi og/eða verktaki kalla til lögreglu eftir því sem umferðarlög kveða á um.

Húsráðendur skulu sjá til þess að allt lauslegt á lóð sé tryggilega fest ef von er á hvassviðri.

Girðingar sem hafa verið reistar vegna mannvirkjagerðar skal fjarlægja þegar þeirra er ekki lengur þörf.

Um öryggi á vinnusvæðum við almannafæri gilda ákvæði skipulagslaga og laga um mann­virki auk reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim og ákvæði laga um aðbúnað, holl­ustu­hætti og öryggi á vinnustöðum ásamt reglum settum á grundvelli þeirra.

17. gr.

Enginn má án leyfis húsráðanda láta fyrir berast á lóðum hans eða landi. Auk þess getur lögreglan bannað mönnum að hafast þar við ef hún telur að það geti valdið óþægindum eða hættu.

Ekki má fara í híbýli manna í söluerindum ef húsráðandi leggur við því bann.

18. gr.

Enginn má fleygja rusli eða öðru þess háttar á almannafæri nema í þar til gerð ílát. Enginn má fleygja rusli eða öðru þess háttar á lóð eða land annars manns.

Hver sem það gerir skal flytja óhreinindin tafarlaust í burt á sinn kostnað.

III. KAFLI

Um ökutæki, umferð o.fl.

19. gr.

Á almannafæri má ekki leggja eða setja neitt það sem hindrar umferð.

Á götum má ekki hindra umferð með skemmtunum eða leikjum nema með leyfi lög­reglu­stjóra.

Bannað er að leggja ökutæki á gangstéttum. Lögreglustjóri getur, að fengnum tillögum sveitarstjórnar, veitt undanþágu frá ofangreindu.

Vörubifreiðum sem eru 5 tonn að leyfðri heildarþyngd eða meira og fólksflutningabifreiðum sem flytja mega 10 farþega eða fleiri má ekki leggja á götum, í íbúðarhverfum eða almenningsbifreiðastæðum nema þau séu til þess ætluð. Bann þetta gildir einnig um hvers konar vinnuvélar og dráttarvélar án tillits til þunga þeirra. Bæjarstjórn getur veitt undanþágu frá banni þessu og skal þá afmarka og merkja sérstaklega þá staði þar sem undanþága hefur verið veitt.

Lögreglustjóri getur bannað stöðu eftirvagna og tengivagna, s.s. hestaflutningavagna, hjól­hýsa, dráttarkerra, báta og þess háttar tækja sem og húsbíla, á götum og almennum bifreiða­stæðum sem þykja valda óþægindum, óþrifnaði eða hættu.

Með vísan í ákvæði reglugerðar nr. 941/2002 um hollustuhætti, er bannað að skilja eftir, flytja eða geyma úrgang á þann hátt að valdið geti skaða, mengun eða lýti á umhverfinu. Þetta gildir einnig um smærri sem stærri hluti svo sem gáma, kerrur, bíla, bílhluta, báta, skipsskrokka og annað þess háttar.

Heimilt er Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja að undangenginni viðvörun, t.d. með álímingarmiða með aðvörunarorðum þar sem tiltekinn er ákveðinn frestur eigenda til úrbóta, að fjarlægja framangreinda hluti, þ.m.t. númerslausar bifreiðar og bílflök. Sama gildir um ökutæki sem skilin eru eftir á opnum svæðum. Tilkynna skal skráðum eiganda og/eða umráðamanni um flutninginn og skal hann bera kostnað vegna flutnings og vörslu ökutækisins.

Þegar lausafjármunir, s.s. hjólhýsi, gámar, bátar, torgsöluhús, frístundahús sem ætluð eru til flutnings og stór samkomutjöld sem getið er um í kafla 2.6 í byggingarreglugerð nr. 112/2012, eru staðsettir án stöðuleyfis skal leyfisveitandi krefja eiganda um að fjarlægja þá innan eðlilegs frests, þó aldrei lengri frests en eins mánaðar, að öðrum kosti verði það gert á kostnað eiganda.

Þegar handhafi stöðuleyfis uppfyllir ekki þær kröfur sem fram koma í grein 2.6.1. sömu reglugerðar eða önnur skilyrði stöðuleyfis skal leyfisveitandi krefja hann um úrbætur innan hæfilegs frests, þó aldrei lengri frests en eins mánaðar. Verði viðkomandi ekki við þeim kröfum skal leyfisveitandi krefjast þess að lausafjármunirnir verði fjarlægðir innan hæfilegs frests, að öðrum kosti verði það gert á kostnað handhafa stöðuleyfis. Tilkynna skal eiganda og/eða umráðamanni um flutninginn og skal hann bera kostnað vegna flutnings og vörslu.

20. gr.

Vélar kyrrstæðra bifreiða og vinnuvéla sem ekki eru í notkun er óheimilt að hafa í gangi eða skilja eftir í gangi lengur er nauðsynlegt er, svo komast megi hjá mengun og hávaða á almannafæri og annars staðar þar sem ætla má að slíkt valdi óþægindum.

21. gr.

Lögreglustjóri getur að fengnum tillögum bæjarstjórnar, takmarkað eða bannað umferð stórvirkra vinnuvéla, vörubifreiða eða annarra ökutækja á einstökum götum ef slík umferð er álitin hættuleg eða til sérstakra óþæginda fyrir aðra umferð eða íbúa.

Akstur torfærutækja er bannaður innan þéttbýlis. Bæjarstjórn getur þó heimilað undanþágu frá þessu ákvæði á afmörkuðum svæðum og skal sú ákvörðun tilkynnt lögreglustjóra.

22. gr.

Á og við götur eða vegi eða þar sem hætta stafar af má ekki gera rennibrautir, renna sér á skíðum, hjólaskautum, hjólabrettum, skautum, sleðum eða iðka leiki, skemmtanir eða íþróttir þannig að hætta eða umferðartruflun geti hlotist af. Einnig er bannað að hanga í bifreiðum, dráttarvélum, vögnum eða öðrum farartækjum sem eru á ferð eða festa við þau sleða, handvagn eða annað sem óþægindum eða hættu getur valdið.

Lögreglustjóri getur heimilað skíða-, sleða- eða rennibrautir á vegi í alfaraleið og skulu þeir vegir sérstaklega merktir sem slíkir. Þar mega ekki aðrir fara með ökutæki en íbúar gatnanna eða menn í erindum þeirra og skal þá ýtrustu varúðar og tillitssemi gætt.

Börn yngri en fjórtán ára, sem fara um á reiðhjólum, hjólabrettum, hjólaskautum, renna sér á skíðum, sleðum, skíðabrettum o.þ.h., skulu nota hlífðarhjálma og viðeigandi hlífðarbúnað.

23. gr.

Ef ís á sjó eða vötnum þykir ekki nógu traustur getur lögreglustjóri bannað alla umferð um hann.

24. gr.

Þeir sem flytja farm um götur sveitarfélagsins skulu gæta þess vandlega að ganga þannig frá farminum að ekki valdi óþrifnaði eða hættu. Ef eitthvað hrynur niður við flutning, fermingu eða affermingu á almannafæri er stjórnanda flutningstækisins skylt að tilkynna það til yfirvalda og hreinsa það upp þegar í stað.

IV. KAFLI

Um veitingastaði, skemmtanahald o.fl.

25. gr.

Um leyfi til rekstrar veitingastaða, útleigu samkomusala í atvinnuskyni og leyfi til skemmt­ana­halds gilda ákvæði laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og reglu­gerða sem settar eru á grundvelli þeirra. Veitingastaði án áfengisveitinga (flokkur I) er heimilt að hafa opna allan sólarhringinn. Stafi íbúum í nágrenni slíks veitingastaðar ónæði af rekstrinum getur bæjarstjórn þó takmarkað afgreiðslutíma hans.

Um staðsetningu, opnunartíma, afgreiðslutíma áfengis, veitingastaða o.fl. vísast til máls­meðferðar­reglna Reykjanesbæjar frá 20. mars 2012 um veitinga- og gististaði.

Afgreiðslu- eða þjónustutími verslana og annarra þjónustufyrirtækja er frjáls að því marki sem heimilt er að lögum er gilda á hverjum tíma eða reglum sem settar eru samkvæmt þeim. Bæjarstjórn getur þó takmarkað afgreiðslu- eða þjónustutíma hjá einstökum aðilum ef starfsemin veldur nágrönnum eða vegfarendum ónæði.

26. gr.

Hver sá sem rekur veitinga- eða gististað, kvikmyndahús, leikhús eða annað samkomuhús eða heldur almenna skemmtun eða sýningu, skal sjá um að allt fari þar vel fram og starfsemin valdi ekki nágrönnum eða vegfarendum ónæði.

Slík starfsemi skal háð sérstöku eftirliti lögreglu og er henni heimilt að fara um samkomusali og önnur húsakynni sem gestir eiga aðgang að.

Á öllum gististöðum skal haldin nákvæm gestaskrá.

27. gr.

Enginn má reka leiktækjastað eða þess háttar starfsemi gegn borgun nema með leyfi lögreglustjóra að fenginni umsögn bæjarstjórnar. Leyfi skal ekki veita til lengri tíma en fjögurra ára í senn. Það skal bundið við nafn leyfishafa og rekstur á tilteknum stað. Ef leyfishafi brýtur gegn ákvæðum greinar þessarar eða reksturinn þykir ekki fara vel úr hendi getur lögreglustjóri svipt hann leyfinu enda hafi leyfishafi ekki sinnt áminningu um úrbætur.

Börnum yngri en 14 ára er ekki heimill aðgangur að slíkum leiktækjastöðum nema í fylgd með forráðamönnum. Miða skal aldur við fæðingarár en ekki fæðingardag.

V. KAFLI

Um götuspjöld og húsnúmer.

28. gr.

Bæjarstjórn ákveður nöfn á götum og lætur festa upp skilti með þeim, þar sem þurfa þykir, svo sem við gatnamót og á fasteignir.

Húseigendur skulu merkja hús sín með húsnúmeri og eftir atvikum bókstöfum, á götuhlið eða öðrum áberandi stað, vegfarendum og þjónustuaðilum til glöggvunar.

VI. KAFLI

Um útivistartíma barna og ungmenna.

29. gr.

Um útivistartíma barna og ungmenna gilda ákvæði barnaverndarlaga og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra.

VII. KAFLI

Um dýrahald.

30. gr.

Búfjárhald er bannað í þéttbýli. Á Suðurnesjum eru í gildi sérstakar samþykktir um hunda- og kattahald. Eigendur hunda og katta skulu afla sér leyfis hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja fyrir hvert dýr í þeirra umsjá. Eigendum dýranna ber að hlíta þeim samþykktum sem í gildi eru.

Bæjarstjórn getur kveðið á um annað fyrirkomulag í sérstökum samþykktum á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Lausaganga búfjár er óheimil í Reykjanesbæ.

Umferð reiðhesta innan þéttbýlismarka skal aðeins vera á merktum reiðstígum, nema að fengnu leyfi sveitarstjórnar.

VIII. KAFLI

Um refsingar, kostnað, gildistöku o.fl.

31. gr.

Ef einhver lætur það ógert sem honum er skylt að gera samkvæmt reglugerð þessari getur lögreglustjóri látið framkvæma það eða gert aðrar nauðsynlegar ráðstafanir til að hindra að vanrækslan valdi tjóni. Kostnaður sem leiðir af framkvæmdum og ráðstöfunum lögreglu­stjóra greiðist af þeim er ábyrgð ber á vanrækslunni.

32. gr.

Brot gegn lögreglusamþykkt þessari varða sektum sbr. 6. gr. laga nr. 36/1988 um lögreglu­samþykktir nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum eða reglugerðum.

Mál sem varða brot gegn ákvæðum lögreglusamþykktar þessarar skal fara með að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

33. gr.

Lögreglusamþykkt þessi, sem bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samið og samþykkt skv. lögum nr. 36/1988, um lögreglusamþykktir og reglugerð um lögreglusamþykktir nr. 1127/2007, staðfestist hér með og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 28. september 2012.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


B-deild - Útgáfud.: 12. október 2012



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum