Hoppa yfir valmynd
11. september 2020

Staða sviðsstjóra þjónustusviðs ríkislögreglustjóra er laus til umsóknar

Staða sviðsstjóra þjónustusviðs ríkislögreglustjóra er laus til umsóknar

Auglýst er laus til umsóknar staða sviðsstjóra á þjónustusviði við embætti ríkislögreglustjóra í samræmi við nýtt skipurit embættisins. Um er að ræða nýtt starf sem heyri beint undir ríkislögreglustjóra. Þjónustusvið sinnir almennri þjónustu innan embættis, við lögregluembættin og við almenning, ber ábyrgð á rekstri miðlægra gagnagrunna, tölvukerfa embættisins og hugbúnaðarþróun. Sviðið tryggir aðkomu hagaðila að stafrænni þróun, styður við innleiðingu, tryggir aðgengi að upplýsingum um stöðu mála, feril og fjölda og öðrum gögnum sem aðgengileg eru. Undir sviðið fellur, greining á afbrotatölfræði, túlkun í nýtileg gögn fyrir markmiðasetta löggæslu og útgáfa tölfræðilegra rannsókna auk fræðilegra rannsókna um afbrot í samfélaginu. Sviðið sinnir almennri upplýsingamiðlun til almennings.  

Leitað er að einstaklingi sem hefur vilja og færni til að styðja við megináherslur embættisins, sem eru þjónusta, forysta, mannauður, nýsköpun og samstarf.

Almennt starfssvið sviðsstjóra:
Dagleg yfirstjórn þjónustusviðs.
Greining afbrotatölfræði, túlkun gagna og vinnsla fræðilegra rannsókna.
Ábyrgð á nýsköpun og stafrænni þróun sviðsins. 
Almenn stefnumótun og yfirumsjón með áætlanagerð og innra skipulagi sviðsins.
Uppbygging mannauðs og liðsheildar ásamt ábyrgð á mannauðsmálum sviðsins.
Samskipti við ráðuneyti, stofnanir og önnur lögregluembætti. 
Kemur fram fyrir hönd embættisins þegar um er að ræða málaflokka sem undir sviðið heyra. 
Ber ábyrgð á og tekur þátt í erlendu samstarfi á vegum alþjóðastofnana sem falla undir verksvið sviðsins. 
Önnur verkefni skv. nánari ákvörðun ríkislögreglustjóra.


Menntunar- og hæfniskröfur:
Hafa lokið háskólaprófi á meistarastigi  er skilyrði, s.s. afbrotafræði eða lögfræði. 
Víðtæk reynsla af verkefnum lögreglu er skilyrði. 
Þekking og reynsla af nýsköpun og stafrænni þróun er skilyrði.
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar. 
Frumkvæði, þjónustulund og jákvætt viðhorf.
Brennandi áhugi á öryggis- og löggæslumálum.
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.


Nánari upplýsingar um starfið og ráðningarferlið veitir Helgi Valberg Jensson í síma 444 2500 ([email protected]). Umsóknarfrestur er til og með 28. september nk. Upphafsdagur ráðningar er 1. nóvember 2020.


Umsóknum skal skila rafrænt á [email protected]

Með umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, hæfni til að sinna starfinu miðað við þær hæfniskröfur sem settar eru fram í auglýsingu og framtíðarsýn. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.


Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og viðkomandi stéttarfélags. Um fullt starf er að ræða og er meginstarfsstöð starfsins í Reykjavík. 


Vakin er athygli á því að samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum