Bókasafns- og upplýsingafræðingur
Bókasafns- og upplýsingafræðingur óskast
Flensborgarskólinn auglýsir tímabundna stöðu bókasafns- og upplýsingafræðings skólaárið 2019-2020 lausa til umsóknar. Um er að ræða 50% stöðu forstöðumanns bókasafns Flensborgarskólans í Hafnarfirði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón og daglegur rekstur bókasafn Flensborgarskólans. Þátttaka í að móta stefnu bókasafnsins ásamt stjórnendum skólans og almenn þátttaka í skólastarfi.
Möguleiki er á að hægt verði að fylla upp í starfshlutfall með kennslu.
Hæfnikröfur
Viðkomandi þarf að hafa lokið námi í bókasafns- og upplýsingafræðum eða sambærilegu námi sem veitir réttindi til að starfa sem bókasafnsfræðingur. Kennsluréttindi eru æskileg. Góð samskipta- og skipulagshæfni er mikilvæg ásamt áreiðanleika.
Vakin er athygli umsækjenda á að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en að ráðningu getur orðið.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag bókasafns og upplýsingafræðinga hafa gert.
Flensborgarskólinn er framhaldsskóli í Hafnarfirði sem starfar eftir áfangakerfi og eru einkunnarorð skólans: þekking - þjálfun - þroski. Á heimasíðu skólans er að finna ýmsar upplýsingar um helstu áherslur og stefnu skólans, www.flensborg.is
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 03.06.2019
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Erla Viðarsdóttir - [email protected] - 5650400
Erla Sigríður Ragnarsdóttir - [email protected] - 5650400
Flensborgarskóli
Bókasafn
Brekkugötu 19
220 Hafnarfjörður
Smelltu hér til að sækja um starfið